þriðjudagur, október 04, 2005

Félagsleg framþróun

Huge félagslegur progress átti sér stað í dag. Eins og sumir vita hef ég verið dálítið félagslega kramin undanfarið og fannst ég ekkert ná að mingla við samnemendur mína. Ég var bara farin að halda að ég væri bara alls ekki eins skemmtileg á ensku og á íslensku og sá fram á einmanalegan vetur. Svo stakk þessi georgíski stakk upp á því að við færum öll saman á pöbb í dag eftir tímann í vinnumarkaðsstefnumótun sem var heldur betur vel til fundið.
Þannig að nú er allt annað í mér hljóðið. Er búin að ákveða að reyna að veiða þessa jórdönsku og þessa brasilísku í vinkonunetið mitt. Held að ég eigi mesta samleið með þeim. Held að þessi georgíski komi líka sterkur inn.

Lífið gengur annars sinn vanagang. Er búin að hlaða inn myndum á barnanetið úr afmælinu hans Gísla og afmælisferðinni fyrir þá sem vilja kikka á það.
Kv. Hilla

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er nú aldeilis gott að heyra, nú svo ef þeim vantar meðmæli um skemmtilegheit frú Hillary þá getum við stöllurnar á klakanum reddað því um hæl. Við kunnum MARGAR sögur af þeim :)
Luv Inga

McHillary sagði...

Ó takk Inga mín, you never let me down....

Nafnlaus sagði...

Howdy hey skvís.
Rosalega er gaman að sjá hvað þú ert dugleg að skrifa! Ég dáist alveg að þér Hildur - ein með gaurana 2 í erfiðu námi í útlandinu en gleymir samt ekki okkur gömlunum á skerinu!
Svo skemmir nú ekki hvað þú ert skemmtilegur penni, maður er alveg komin til þín í anda :o).
Btw - er búið að plana einhverja saumóferð ;)???

McHillary sagði...

Takk mín kæra Brigitte! gaman að heyra frá þér!veit ekki hvað er að gerast með saumótravel, hef ekkert heyrt...