sunnudagur, október 09, 2005

Róleg helgi...

Ég er búin að vera hræðilega slæm í bakinu og er búin að eyða formúgu í nudd tvo síðustu fimmtudaga á verðlaunastofunni. Ég ákvað því að halda mig frá tölvunni í nokkra daga til að eyðileggja nú ekki árangurinn.

Það er nú svo sem ekki mikið að frétta. Helgin hefur verið róleg hjá okkur. Á föstudagskvöldið bauð mín góða vinkona, Linda Rós, mér í mat ásamt nokkrum félögum sínum. Það var reglulega gaman og gott enda er Linda mikill eðalkokkur, við fórum ekki varhluta af því þegar hún gisti hérna hjá okkur fyrstu dagana eftir að hún kom til Edinborgar. Í gær fórum við svo í fótboltann sem fyrr en strákarnir áttu báðir að keppa. Ég var næstum búin að gleyma því að við áttum að mæta fimm mínútum fyrir níu, eins og það hefði nú átt verið fast í mér. Það voru því allir mættir þegar við komum alveg á síðustu mínútu. “Við erum búin að bíða hérna í fjóra klukkutíma” sagði þjálfarinn hans Gísla og allir foreldrarnir hlógu. Hahah, gott að geta verið hér til skemmtunar. Jæja, liðin þeirra beggja unnu leikina og mikil hamingja var með það.

Svo fengum við “Ingu” í heimsókn sem heitir reyndar Gunna. Hún var t.d. að fræða okkur um hversu erfitt væri að kaupa sér hérna íbúð, það er nú bara ekkert smá, sérstaklega á góðum stað sem þessum. Ef maður á ekki útborgun þá er hægt að fá 100% lán og þá eru árstekjurnar reiknaðar x3. Þannig að ef ég er með 50 þús pund í árstekjur, sem eru góð meðallaun hér, þá gæti ég keypt fyrir 150 þús. Á íbúðina mína voru settar 225 þús. pund þegar kerlurnar sem eiga hana ætluðu að selja hana í vor. Ég þyrfti því að vera með um 75 þús. pund í árstekjur til að geta keypt hana ef ég ætti ekkert til að leggja út! Það er nú bara þó nokkuð og sennilega nokkuð þangað til mér auðnast það. Og mér sem leið svo vel hérna að ég gat bara vel hugsað mér að fjárfesta í kofanum. Best að hugsa ekki um það meira.

Í dag fórum við svo í Edinborgar kastala en við höfum haft það á stefnuskránni lengi. Við höfðum öll mikið gaman af því. Það er alveg ótrúlegt að ímynda sér að kastalinn hafi staðið þarna í 3000 ár. Það elsta sem er upprunalegt núna er síðan um árið 1000. Ég smellti nokkrum myndum inn á barnanetið.

Jæja, svo er bara vinnuvikan framundan. Vikurnar þjóta áfram og önnin verður búin áður en maður veit af. Ég á að skila fyrsta verkefninu mínu sem gildir eitthvað í lokaeinkunn á föstudaginn í næstu viku og ég er svona aðeins farin að líta á það. Maður verður því voða bissí í vikunni. Í kvöld er hins vegar Dirty Dancing í sjónvarpinu og við mamma ætlum að horfa...
Vonandi hafið þið það öll sem best. Kveðja, Hildur

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

æ elsku tjellan. Vona að bakið hætti að stríða þér. Það er ekki gaman að ganga um bakveik. Skynsamlegt að taka því rólega! fínasta mynd af ykkur í Edinborgarkastala. Það er opplivelse að fara þangað.
Hafðu það gott beibí!

McHillary sagði...

takk elísan mín... vona að þú hafir það gott líka mín kæra, fóru þið í kastalann í sumar?

Nafnlaus sagði...

hallúúúú aftur. Nei ég hef farið tvisvar til Edinborgar og þá í bæði skiptin skellt mér í kastalann. Enda er varla hjá því komist.. hann trónir þarna yfir manni svo tignarlega.
Ciao bella.

Nafnlaus sagði...

Ég hef einmitt líka komið í Edinborgarkastala, þetta er svo falleg borg. Æðislegar myndirnar.
Fariði vel með ykkur knús Ingan

Nafnlaus sagði...

Það eru komnir tveir dagar frá síðustu færslu. Á að halda manni í myrkrinu endalaust?

Nafnlaus sagði...

Hva, eru engar fréttir af Edinborgarbúum? Ertu kannski bara busy í lærdómi dearest. kv Imba Sal