mánudagur, október 03, 2005

Ó mig kvíður fyrir því...

....að mamma fari heim. Það styttist alltaf. Núna um miðja viku er tíminn akkúrat hálfnaður og þá er bara 2 og hálf vika eftir. Það verða heldur betur viðbrigði enda hefur hún verið ómetanleg hjálp. Tvo daga í viku er ég í skólanum frá 4-6 síðdegis og þá eru strákarnir búnir í skólanum. Þetta nám er sem sagt ekki hannað fyrir foreldra sem eru einir að brasast. Sérstaklega í ljósi þess að það er ólöglegt að skilja börn hér eftir ein heima undir 16 ára aldri. Og það gerir enginn og alls ekki ég sem hef það að metnaði að vera fyrirmyndarborgari hér í öllum skilningi meðan á dvölinni stendur.
Jæja, þannig að þetta hefur verið höfuðverkur hvað á að gera við drengina þessa daga frá því að mamma fer og Keli kemur 17. nóv. En nú er lausn í sjónmáli.

Þannig er að mamma hitti íslenska konu fyrir utan skólann einn morguninn sem hefur verið hér búsett um langan tíma og starfar sem barnfóstra. Konan minnti mömmu ægilega á mína góðu vinkonu Ingu Salóme og mér leist nú heldur betur vel á að komast í kynni við sýnishorn af Ingu minni þennan veturinn. Undanfarna daga hef ég verið að skima eftir “Ingu” á morgnana og svo í morgun hitti ég hana loksins. “Inga” kom mér í samband við konu sem rekur einshvurslags barnfóstru agency og það er bara ekkert annað en það að það var hringt hér í kvöld og búið er að finna fyrir mig lady til að passa hér synina meðan ég skýst í skólann. Hún sér víst um að “make some tea” handa þeim og hjálpa með heimanám. Mér er stórlega létt en það er kvíðablandið þó. Ég var nefnilega eiginlega að vona að það myndi finnast einhver ung stelpa í þetta. Kannski einhver sem tæki hlutina ekki of alvarlega. Þessi hefur víst mikla reynslu og ég veit ekki hvað og ég á bara von á upplýsingum í pósti um barnfóstruna. Það er ekkert minna formlegt en það. Mér líður bara eins og Lynnette í Desperate Housewifes.

Nú finnst mér eins og að drengirnir mínir þurfi að sitja hér straujaðir og fínir, með greitt til hliðar í köflóttu vesti og skyrtu og vera svona drengir sem standa upp fyrir gömlum konum í strætó. Sem er nú ekki alveg raunin. Þeir eru heldur ekkert alveg að rifna úr spenningi yfir þessari lendingu. En hvað um það, eitthvað verða allir að leggja á sig í þessu partýi og ég bíð bara spennt við bréfalúguna..
Kveðja, Hilla

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Allamalla.... er til eitthvað meira breskt en þessi barnfóstrulýsing? "would you like some tea, boys?" hahahaha... sé þá í anda.... "yes, please, mam...!" Gvöööð... þú verður að segja mér allt um hana þegar CV-ið hennar berst.
Later darling...

Nafnlaus sagði...

Jaaaa það er ekki leiðum að líkjast. Ég virðist eiga tvífara um allan heim bara. Ég þarf að fara að ræða eitthvað við hann pabba gamla.....later skvís Inga all-around

Nafnlaus sagði...

Spurning hvort þetta verði nú ekki bara einhver Mrs. Doubtfire-týpa ;) það er nú bara hressandi, hehe. En svo er nú ráð að taka bara passann hennar múttu í gíslingu og neita henni um að fara ;) ... þó hann Elvar Orri verði ekki sáttur með það...það er hálf-tómlegt með ykkur öll þarna í útlöndunum.
Kveðja