fimmtudagur, október 27, 2005

Umræðutími og tékkhefti

Hellú!

Bara nokkrar línur en ég er náttúrulega svo upptekin með gestina mína!
Er dálítið búin á því eftir vikuna, stjórnaði umræðutíma í fyrsta skipti í dag, úfff, gott að það er búið. Var stressuð og hafði ekki lært intro-ið mitt alveg nógu vel utan að. Held samt að þetta hafi sloppið fyrir horn. Samstjórnandi minn var kínversk samstúdína sem er alveg yndislega vinalega en ég skil varla eitt einasta orð sem hún segir, svo mikill er kínverski hreimurinn. Og við áttum semsagt að stjórna umræðum saman.
Jæja, er agalega fegin að þetta er búið, á bara eftir að stýra einum umræðum aftur á önninni og það er sem betur fer langt langt þangað til.....

Svo ætlaði ég nú heldur betur að fara að borga með ávísanaheftinu mínu sem ég fékk sent heim eftir að bankareikningurinn var loks opnaður. Hér eru nefnilega ávísanir ekki úreldar og mjög vinsælt að borga allt með tékka. Þeir sem mig þekkja frá því í gamla daga vita að ég var einu sinni alveg rosalega mikið fyrir að skrifa tékka. Ég var aðeins búin að velta fyrir mér hvernig ég ætti að fylla þetta út en reikningsnúmerið mitt og nafnið er áprentað og voða fínt. Jæja, ég er búin að ætla mér að skrifa tékka ótal sinnum, senda í pósti sem greiðslur og ég veit ekki hvað. Svo lét ég verða af því í gær að rífa nú bara fram tékkheftið til að greiða fyrir innbústryggingu í leigumiðluninni minni en ég hafði trassað að tryggja mitt hafurtask. Nei, sagði Hanna vinkona mín á miðluninni, þetta er sko færslubókin þín. Jáhá, það er nefnilega það, ég hefði nú átt að senda “færslublöðin” mín í pósti út um allar trissur sem tékka. Ég ætlaði einmitt að senda Daníel með “tékka” í skólann í dag fyrir 150 pundum fyrir skólaferðalagi sem hann er að fara í. Sjáiði ekki fyrir ykkur svipinn á fraukunum í skólanum að taka upp færslubleðilinn sem greiðslu...Skil nú ekkert í því að vera senda manni þessa færslubók, glætan að ég eigi eftir að færa inn í þetta.
Jæja, það er ágætt að varð mér ekki mikið til skammar, þær eru t.d. dálítið formlegar þarna í skólanum og hefðu kannski ekki séð á þessu spaugilegu hliðina. Í kjölfarið fór ég í bankann til að ná í alvöru tékkhefti, kemur þá ekki í ljós að ég fæ ekki hefti! Ekki fyrr en eftir svona 4 mánuði, þegar þeir hafa metið hvort mér er treystandi. Þetta er afar lýsandi fyrir samskipti mín við Royal Bank of Scotland. Mæli ekki með þeirra sörvis.
Ciao ciao, Hilla gúmmítékki.

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já Hildur mín, ég man eftir ávísanaárunum góðu, það voru fáir eins miklir spekúlantar í notkun tékkhefta eins og ákveðin McHi***** í þá gömlu góðu daga. En það er nú mikið vatn runnið til sjávar síðan þá, og er ég nú alveg viss um að hinur konunglegu herrar í skoska bankanum gætu alveg treyst þér fyrir eins og nokkrum ávísanablöðum. Fyndið samt hvað það virðist allt vera upp á gamla góða móðinn í SK.
En jæja er ekki gott að hafa brósa og co í heimsókn, get rétt ímyndað mér það.
Hér er vetur konungur gengin í garð í öllu sínu veldi, svoleiðis ískalt og fjúk. Var einmitt að skoða veðurspánna á Aarhus í gær og þar er 17 stiga hiti :(

Knús til ykkar
Inga Sa

McHillary sagði...

Hæ Ingan mín. Já þetta er allt voða gamaldagshérna það er nú víst.
Jú það er yndislegt að hafa þau hérna, Elvar Orri situr núna hjá mér að horfa á idolið sitt Bósa ljósár en ég ætla að passa hann meðan mamma hans og pabbi æfa kreditkortasveifluna á Princess Street. Seinna í dag erum við að hugsa um að spóka okkur niður í gamla bænum, því það er svo gaman. Veðrið er enn algjör lúxus, það var alveg yndislegt í gær en sólarlaust í dag. Það er samt ekki orðið kalt. Knús til þín elskan og eigðu góða helgi honní bonn.
Kv. Hilla

Nafnlaus sagði...

Hæ Hilla mín
Af hverju eru þeir að senda færslublöðin 4 mánuðum á undan heftinu???? Skil vel að þú hafir ruglast doldið.
Já veturinn er greinilega kominn! Við systurnar erum að fara í sumarbústað á eftir með drengina og ætlum að hafa það notalegt undir teppi með góða bók (og eitt og eitt rauðvínsglas). Njóttu helgarinnar með gestunum þínum :-)
Unnur

McHillary sagði...

Hæ elsku Unnsa mín. Gaman að heyra í þér. Bið kærlega að heilsa Hildi systur og hafið þið það nú kósi í sumó. Við erum að fara út á ráp með Arnari og co. það er dásamlegt að geta frílistað sig svona í góða veðrinu.
Bestu kveðjur, Hilla smilla

Nafnlaus sagði...

Bwahahahaha ég dey! Ég dey! Djöfull hefði það verið ógeðslega fyndið ef þú hefðir sent drenginn með þetta í skólann. Frá sjónarhóli viðtakenda hefði þetta örugglega verið eins og að fá Matador peninga með barninu. Ég hefði urlast úr hlátri. Ég veit ekki af hverju en þessi saga minnti mig á konuna sem var einu sinni að vinna með þér í bakaríinu í Miklagarði. Þú manst kannski eftir henni, hún pikkaði alltaf bara einhverjar bull tölur á reiknivélina...og hefti svo bullið á pokana. Fannst þetta eitthvað flott að gera þetta hratt en hafði ekki þolinmæði eða nennu í að læra að gera þetta rétt. "Dúrírúrí...nú ætla ég að teikna peninga"

Annars bið ég að heilsa Arnari og kompaní, segðu honum að ég sé rétt ókomin að sækja í skóna. Tíminn líður hratt á gerfihnattaöld....

Annars er ég að drepast úr þynnku. Fór á svo harkalegt fyllerí í gær (NÚNA máttu spyrja mig hvernig partýið hafi verið;) að ég gerði dálítið sem ég hef ekki gert í áratug eða meira.

Hafið það öll áfram gott elskurnar:)

McHillary sagði...

Edda hjartað mitt, nú verð ég að hringja í þig af því að ég verð svo forvitin, hvað getur það verið sem þú hefur ekki gert í áratug eða meira, hummmmmm.....man ekkert eftir þessari bakaríisgellu, en við höfum örugglega fengið eitt gott kast yfir því í denn. Ó god, hvað mig langar í eitt gott hláturskast með þér, honní.
Mundu nú líka eftir því að sækja afmælisgjöfina þína til mömmu, hún getur líka skutlað henni til þín, hringdu í hana í síma: 849 6024 eða 585 5151. Luv jú, Hilla

Nafnlaus sagði...

Klukkan er orðin margt og þú örugglega farin að sofa en ég ætla að reyna að hringja í þig annað kvöld. Er örugglega ekki búin að nota allar "vinur í útlöndum" mínúturnar mínar ennþá.

Ég fer nú ekki að láta hana móður þína komna á sjötugsaldur (ótrúlegt alveg hreint! Hún lítur ekki út fyrir að vera degi eldri en 48 ára...maður ætti kannski að hætta að reykja) fara að hendast með þetta til mín. Ég hringi í hana líka á morgun og við komum okkur saman um afhendingarstað. Takk fyrirfram elsku kellingin mín:) Það er nú þér líkt að vera að standa í því að versla afmælisgjafir á fullu í námi í útlöndum.

Heyri í þér skan:)

Nafnlaus sagði...

Oh my god, oh my god, oh my god! Þú ert svo mikið æði skæði!!! Minnir mig óneitanlega mjöööög mikið á færsluævintýri frökenarinnar hér í denn.
Hafðu það nú voða voða gott McHillí mín.

(Gvöööð Edda mín... við verðum að fara að fara að hittast. Ég er alveg blá og græn af forvitni um hvað það er sem þú hefur ekki gert í áratug. Hugs hugs.... )

Nafnlaus sagði...

Ég verð að vera sammála Eddu, ligg í kasti við tilhugsunina um stífu skosku skólamaddömuna takandi á móti færslubleðli upp á 150 pund sem greiðslu fyrir skólatrippi :).
Maður ætti nú að prófa þetta bara, gæti sparað nokkra aura.....

Nafnlaus sagði...

Hæ Lísa mín:) Æ þú yrðir nú fyrir vonbrigðum...það er ekki svo krassandi. Meira svona neyðarlegt fyrir konu komna á þann virðingarverða fertugsaldur;)