mánudagur, september 11, 2006

Gat það verið...

að það væri eitthvað einfalt mál að flytja hér litla búslóð milli húsa?
Ó nei. Ég var svo brött að ætla bara að hringja á eins og einn sendibíl í gær þegar ég var búin að pakka niður. Er þá ekki bara vikubið! Hér veit fólk víst með minnst vikufyrirvara hvenær það þarf á sendibíl að halda þegar það er að flytja. Djísús. Þetta er eins óíslenskt og það getur verið. Og svo að það sé ekki nóg þarf ég að flytja fyrst allt draslið til Arnars og síðan þaðan og í nýju íbúðina næsta laugardag. Double trouble. Einn removal sörvisaðili sem var laus sagðist taka 70 pund á tímann og hvert útkall væri minnst 4 tímar!! Blessaður og sæll sagði ég þá, heyrumst never again. Við fórum svo með tvær ferðir af dóti í kerrunni hans Elvars Orra og strákarnir skömmuðust sín niður í hæla. Mér var reyndar ljóst að slíkur flutningur myndi taka alveg forever.

Jæja, loksins náði ég svo í flutningaþjónustu sem sér um svona "smaller movings" og átti tíma á miðvikudag og laugardag. Það er víst bara þeir sem eru annað hvort mjög reiðir (hann útskýrði það ekki nánar) eða hefur verið fleygt út sem panta flutningabíl með mjög short notice sagði karlinn. Nú eða þá Íslendingar. Hann kannaðist við það líka. "Þú verður að pakka mjög skynsamlega og ekkert þyngra en þú getur sjálf borið. Síðan verður þú að átta þig á því að manneskjan sem kemur er bara að aðstoða þig og gerir þetta ekki fyrir þig" tvíendurtók hann svo. Jájá, ég sagðist nú skilja það en sagðist ekki verða heima sjálf á miðvikudaginn og bróðir minn yrði hérna til að græja þetta. "Ég ráðlegg þér eindregið að vera heima sjálf" sagði þá flutningamógúllinn, "annars er hætta á því að sá einstaklingur sem á að hafa umsjón með þessu, í þessu tilfelli bróðir þinn, sé confused og skilji ekki að bílstjórinn sé þarna bara til að aðstoða en ekki til að sjá um þetta. Svo skilur hann kannski ekki heldur að bílstjórinn tekur ekkert þyngra en hann sjálfur getur borið. Síðan verður að vera alveg örugglega búið að pakka öllu." Mig langaði að fara að hlæja. Ég sá Arnar brósa einmitt fyrir mér alveg rosalega confused yfir þessu öllu, og enn meira confused en ég myndi vera sem er líklegt eða þannig. Ég gat fengið karlinn með semingi til að samþykkja þetta. Með því skilyrði að ég borgaði flutningana no matter what. Þó við yrðum bara svo hringlandi confused að við hættum bara að við að flytja þegar bílstjórinn kæmi.

Ég hefði síðan átt að gera aðeins meira grín að þessu eldvarnarráðstöfunum í síðustu færslu. Brunabjallan glumdi bara yfir allt í vinnunni í morgun og allir þutu út með það sama. "Á maður að ansa þessu?" spurði ég. Yesss, sögðu samstarfskonur mínar og tættust í jakkana, þrifu veskin og hlupu niður neyðarútganginn. Þar hittust allir við tré og farið var í gegnum það hverja vantaði. Þetta reyndist síðan vera brunaæfing. Þær eru reglulega og alltaf teknar jafn alvarlega. Síðan fóru bara allir upp og héldu áfram að vinna eins og ekkert hefði í skorist.
Ég man aldrei eftir að hafa hreyft mig þar sem brunabjalla byrjar að gala. Það er bara einhver einn sem hleypur af stað til að slökkva á bjöllunni sem vogar sér að tröfffla þegar fólk er bissí.

Cultural difference. Það er þema dagins í dag.

Ykkar, Hilla bruna-og flutningapilla.

Hamingjuóskir fær svo hinn brósi minn sem er heldur ekkert voðalega confused og var að skila mastersritgerðinni sinni í Essex á föstudaginn. Kemst ekki til að hringja í þig Árni minn, fyrr en þetta flutningsbrjálæði er over and done with. Þá hringi ég og við eigum gott spjall.

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

O þú ert bara draumur í dós Hilla pilla! Gvöð hvað ég er lánsöm að þekkja þig krúsídúllan þín. Það sem þú kemur manni í gott skap :þ
Nákvæmlega þetta maður kippir sér nú ekki upp við einhverjar viðvörunarbjöllur Var einmitt í IKEA um daginn þar sem allir rétt litu upp þegar heyrðist í kerfinu og svo héldu bara allir ró sinni og héldu áfram að versla... nema auðvitað útlendingarnir sem ruddust í ofboði út úr versluninni.
Risaknús og gangi þér vel með flutningana vonandi verður brósi ekki confused!
kv. Ásta Miklagarðspæja!
(Keypti mér sko bol með merki miklagarðs og fékk löggildingu í síðasta saumó!:)

Nafnlaus sagði...

Hilla mín. Þegar ég held þú getir ekki toppað þig í gríninu þá þrumar þú út einum pistli sem best ætti heima aftan á Fréttablaðinu (þú veist.. þessir sem maður les fyrst á morgnana.)
Sé ykkur mægðinin í anda með kerruna og góssið! muuuuuhahahahaa...
Ég byrja að vinna á morgun. Hjáááálp! Spennó og smá kvíði í bland.
Gangi þér vel með flutningana. Arnar minn... ég vona að þú verðir ekki of confused í þessu öllu saman.

McHillary sagði...

Hæ darling, þið fáið báðar McHillary verðlaun fyrir að halda uppi kommentunum hérna á síðunni.Alltaf jafn gaman að heyra í ykkur. Hér sit ég og er að fara að vinda mér í að ganga frá eldhúsinu. Var að fara yfir þetta með Arnari sem verður með þetta allt á hreinu í fyrramálið og verður hér mættur eins og kassalögregla. Svo er maður bara að yfirgefa Bruntsfieldgarðana, það er hálfskrýtið. En jæja, ég vinn alveg eins og mófó og er strax komin með fullt fang af verkefnum. Hugsa til þín á morgun Elísa skvísa, þú malar þetta alveg. Maður er náttúrulega alveg dauðstressaður þegar maður er að byrja. Ég er nú ekki alveg laus við hnútinn ennþá, en þetta er allt að koma. Ertu ekki búin að strípa og klippa? Það er algjört lykilatriði að vera vel pússaður, það dugði ekkert minna en tvær ferðir á verðlaunastofuna mína í síðustu viku. Fréttablaðið segirðu, það er kannski hugmynd, hummm... Vona að þú hafir það gott Ásta mín, hugsa oft til þín.
Lov jú gæs, er farin að þrífa.

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Hæ Hilla!
Þetta er alveg greinilega sami maðurinn og bílaði hér dóti á milli húsa fyrir okkur um daginn, Björgvin kannaðist strax við pistilinn sem var þulinn í símann - bara búið að bæta við hann að auk reiðra og þeirra sem hafi verið hent út á götu séu Íslendingar á meðal þeirra sem nota þjónustu þeirra! þegar til kom reyndist þetta svo afar ræðinn maður, áhugasamur um skyldleika hina ýmsu tungumála o.m.fl.
Verðum svo að fagna vel og vandlega þegar þetta flutningastúss er allt á bak við þig. Bæ ðe vei, hvað er litli bróðursonurinn gamall? Skottan hérna megin er að byrja í leikskóla og gengur bara vel að ,,settlast in".
Kveðja
Villa

Nafnlaus sagði...

fliss fliss og hahahaha ég sit hér og skellihlæ, þú ert óborganleg.
Vonandi er allt yfirstaðið og þú flutt yfir til brósa.
heyri í þér á línuni fljótlega knús iss

Nafnlaus sagði...

Vá.. ég sem vinn aldrei neitt. Mchillary verðlaunin er nú ekkert fraterí!
Fyrsti vinnudagurinn búinn og það er hægt að skafa mig upp af gólfinu. Eftir tvö ár heima var þetta overdós... en svaka gaman! Það á eftir að taka mig tíma að venjast því að vera ekki heima og taka á móti strákunum. Vignir minn vissi bara ekki hvað hann átti af sér að gera þegar hann kom heim. Sat víst bara lengi í sófanum og beið (ááááiiii!) En þetta kemur allt saman í rólegheitunum.

Gaman að heyra með vinnuna, frk. recearch officer (by the way... mega kúl titill!) Flott að heyra að þú byrjar með látum.
Ég trúi því að það sé skrítið að flytja. Íbúðin er svo frrrikalega kósí! En þú ert þó allavega ekki á leið í 110 Rvk.... ekki strax allavega.
Wello... læt þetta nægja. Gangi þér vel krúslan mín í því sem þú ert að snúast í þessa dagana.
Heyrumst fljótt.

McHillary sagði...

Hae darlings, ja thad ma sko skafa mann upp af golfinu herna megin lika. Madur vinnur fyrir laununum sinum that is for sure og vogar ser ekki a netid til ad sinna privatmalum fyrr en eftir vinnutima.
Er komin til brosa og buin ad fylla hja honum ibudina af doti. thetta var nu meiri flutningurinn drottinn minn dyri...segi betur fra thvi seinna.
Gott ad allt gengur vel Elisa darlingur, heyri i ther i mega longu simtali thegar eg er flutt og get farid ad hringja. Thad verdur nu typiskt ef thad tekur oratima ad fa nytt numer tengt. Jaeja, best ad koma ser hjemm.

Nafnlaus sagði...

Hei beibí, hefur þú nokkuð kynnt þér þetta http://www.smartsimi.is/
þetta ku vera svaka sneddí og þá þyrfti ég ekki að downloda skype-inu (eins og það er nú víst flókið)
Hlakka til að heyra flutningasöguna og meira frá nýju vinnunni. Brjálað að gera hjá kerlu. Já og Elísa mín til lukku með jobbið-þarf líka að fá smá update hjá þér. Spurning að hóa í saumó fljótlega þar sem fleiri en moi fá að láta ljós sitt skína ;)
Hafið það nú gott.
Gulla

Nafnlaus sagði...

Jæja smá knús yfir hafið vonandi eru flutningarnir yfirstaðnir.
kv. Ásta

Nafnlaus sagði...

Hvað er að frétta af þér beibílove?
Hlakka til að heyra öppdeit úr vinnunni og sonna.

Mikligarður... nú er komin tími á einn hitting eða svo! Hver var næst?