
eftir ritgerðarlokin. Takiði eftir hvað hún er yfirveguð þessi dama. Hún fer á upp á vegg hjá mér í nýju íbúðinni, á góðan stað.
En jæja já, það er nú orðið langt síðan maður skrifaði síðast á þessa síðu og ef það er einhver ennþá sem kíkir annað slagið, þá þakka ég pent fyrir það. Ég þakka líka öllum sem hafa sent mér hamingjuóskir og góðar kveðjur síðustu daga með ritgerðarlokin. Mastersverkinu var sem sagt skilað sl. mánudag og er ekki laust við að það hafi verið léttir. Þessar vikur á undan voru annasamar í meira lagi. Gvvöðð minn góður hvað það er gott að vera laus. En ég er ánægð með ritgerðina og nú er bara að bíða og sjá hvort prófdómararnir verði imponeraðir.
Og svo byrjaði ég í nýju vinnunni minni í gær, bammbararamm. Ég átti reyndar að byrja á miðvikudaginn en það varð að fresta því um tvo daga vegna óviðráðanlegra orsaka. Ég átti nú erfitt að leyna því hvað ég var fegin. Veitti ekkert af tveimur frídögum í viðbót. Ég er semsagt farin að vinna hjá samtökum sem heita Children in Scotland og eru regnhlífasamtök yfir 450 minni samtök er vinna að barnaheill í Skotlandi. Þeir eru með stefnumótunar- og rannsóknardeild og ég er núna titluð Research Officer og fékk tímabundinn kontrakt við að hanna hluta af National Safety Action Plan sem á að draga úr slysatíðni barna. Þetta er spennandi jobb, launin og vinnuaðstaðan fín og samstarfsfólkið virðist indælt. Getur sem sagt ekki verið betra. Ég var ótrúlega ljónheppin, því þetta er fyrsta og eina starfið sem sótti um hérna. Svo er þetta bara 2ja mánaða samningur sem hentar ljómandi. Er ekki til í að binda mig lengur í bili. Ég útskrifast í nóvember og eitthvað þarf maður nú að pússa sig fyrir það. Mig langar líka í almennilegt frí til að jólast, baka piparkökur og búa til jólakonfekt með Arnar brósa. Get eiginlega ekki beðið.
Það er annars ótrúlegt að fyrirtæki eða samtök fari út í það hér að ráða fólk tímabundið. Þvílíkt og annað eins vesen í kringum eina ráðningu. Það var hringt hérna í mig um helgi frá einhverju ‘Disclosure’ fólki til að yfirheyra mig um alls konar hluti, hvort ég kannaðist við eitthvað heimilisfang, hefði keyrt bíl hér á ákveðnum stöðum, hefði komist í kast við lögregluna, hvar bræður mínir byggju og nöfn þeirra og ég veit ekki hvað. Upplýsingarnar mínar pössuðu við einhverja aðra manneskju sögðu þau. Ég hefði nú ekki fyrirfram haldið að það væri mikil hætta á því að margar nöfnur mínar hefðu komist í kast við lögin hérna í Skotlandi. En hvað veit maður svo sem. Ég beið bara eftir því að fulltrúi minn í lögreglunni hann PC Hamilton mætti til að taka af mér langa og ítarlega skýrslu og tæki fingerprints og DNA. En þetta reddaðist án þess að það þyrfti að koma til þess og ég fékk sent Disclosure vottorðið mitt. Svo er ég búin að sækja um National Insurance númer og fara í viðtal út af því og ef guð lofar fæ ég númerið mitt innan tíðar sem þýðir að ég mun um alla eilífð hafa einhvers konar kennitölu í Bretlandi sem er nauðsyn ef maður ætlar að vinna. Þegar ég var svo búin að fá allítarlegar upplýsingar í gær um t.d. allar eldvarnargræjur sem ég gæti barið í ef ég ‘smelt fire’ á nýja vinnustaðnum og hvar þeir gætu farið á salerni sem kæmu til mín í vinnuna og væru bundnir hjólastól, gat ég farið að vinna. Þeir fara meira eftir reglugerðunum Bretarnir heldur en við Íslendingarnir og ég gat ekki annað en brosað þegar þetta bara á góma með hjólastólinn. En það er svo aldrei að vita nema þessar upplýsingar gagnist.
Og hvað er svo meira? Arnar og Magga eru flutt í næstu götu og það er nú meiri lúxusinn að hafa þau svona handan við hornið. Elvar litli er að fíla nýja umhverfið sitt og er bara hinn sprækasti með þetta allt. Við flytjum yfir til þeirra í þrjá daga í næstu viku, því við yfirgefum Bruntsfield garðana á miðvikudaginn en fáum ekki nýju íbúðina fyrr en næsta laugardag. Ég verð ægilega fegin þegar maður verður búin að koma sér fyrir í nýja slotinu, þá fyrst nýt ég þess almennilega að vera laus úr ritgerðarprísundinni.
Það er allt hið besta að frétta af drengjunum, Daníel er kominn núna í gagnfræðiskóla og er agalega lukkulegur með sig. Hann var valinn aðalmarkmaður í skólaliðinu og mamman dekraði hann með nýjum markmannsgræjum og hann er ekkert smá reffilegur þessi elska. Gíslinn minn heldur áfram í gamla bekknum sínum og er alsæll í Sciennes. Hann er aðeins að hvíla sig á fótboltanum og er farinn að æfa tennis. Núna vill hann ólmur vera hér í þrjú ár í viðbót svo hann komist líka í skoskan gaggó. Humm, veit nú ekki um það, en er á meðan er.. og það fer vel um okkur á meðan.
Ást og kossar,
Hilla MSc-Smilla.

2 ummæli:
Gaman að heyra hvað allt er lukkulegt hjá ykkur.
knús og kremj, Ásta
Frábært hjá þér Hildur mín. Er stoltur af þér og sendi okkar bestu kveðjur héðan úr E. Sussex.
Gangi þér nú allt í haginn. Fylgist með ykkur á blóginu.
Siggi, Guðný og Co., Bexhill
Skrifa ummæli