Síðan síðast er ég búin að planleggja tvö ferðalög í sumar, það er nú bara ekkert minna. Þann 9.júlí ætla ég að fylgja drengjunum mínum til Íslands og dvelja í 10 daga. Gvvuð hvað það verður gaman að hitta ykkur öll. Ég sá það fyrir mér að ég myndi verða að steini hérna fyrir framan tölvuna ein í 5 vikur í sumar. Þannig að nú verður maður duglegur á Bókhlöðunni á daginn og fær sér whitewine á kvöldin og hefur það huggulegt í góðum félagsskap. Endilega kíkiði nú á calendarið og takið frá heppilegt kvöld...
Nú jæja, svo var ég búin að vera að velta því fyrir mér að fara með strákana til London í nokkra daga á undan Íslandsferðinni og var búin að nefna það aðeins við mömmuna sem á strákinn í bekknum hans Gísla sem heimsótti okkur í síðustu viku. Systir hennar á hús í London og hún vildi bara endilega tékka á því hvort við gætum ekki bara gist þar. Ég fór náttúrulega alveg í skrúfu yfir þessum almennilegheitum en húsið reyndist síðan vera upptekið. Ég var því að renna á rassinn með þetta ferðalag og hitti Natöshu (mömmuna) aftur í gær þegar englarnir okkar voru að flytja engergy saving söngleik. Hún fór að segja mér frá svona sumarbústaðaskógi sem væri alveg frábær fyrir krakka og hvort við ættum ekki bara að leigja saman bústað yfir helgi! Og það er bara ekkert annað en það að við erum bara búnar að panta sumarhús í Whinfell Forest í Englandi þar sem hægt er, ásamt öðru, að spa-ast day in and out. Ég set linkinn hérna með, þetta er ekki nema 2 og 1/2 tíma akstur héðan, ef Edinborgarar vildu kíkja á þetta http://www.centerparcs.co.uk/index.jsp
Þannig að ég er á leiðinni í 3 daga ferð með þessari konu sem ég þekki bara varla neitt!
Segiði svo að maður lifi ekki spennandi lífi..
Svo er Júróvísjon í kvöld. Linda Rós mætir hingað með íslenska vinkonu sína og saman ætlum við að horfa á þessa hörmung. Maður má nú ekki vera of neikvæður svo sem, en mikið óskaplega vildi ég nú að við værum að fara að hlusta á Regínu Ósk. Þá myndi sko ekki standa á mér að hringja inn atkvæði hérna frá Bretlandinu...
Lov, Hilla.
fimmtudagur, maí 18, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

5 ummæli:
Hey.. ég var í Centerparks í fyrra. MEGA KÚL að vera með krakka þarna. Það er svo margt hægt að gera. Mæli með að leigja hjól og vera duglegur að spranga um. Það eina sem mér fannst mínus var að bústaðurinn sem við vorum í var orðin svolítið þreyttur. En ég var nú líka kannski extra viðkvæm því Ingunn Jóna var bara 6 mánaða. Anyways... þetta er mega gaman. Bannað að vera á bílum þarna og því er auðveldlega hægt að slaka á varðandi börnin.
Aljgört möst að hittast þegar þú kemur heim. Ég er í bænum 9-13. júlí. Vona að þú verðir e-ð viðlátin þá.
Tala við þig fljótt mín kæra. Ég er ennþá að skafa hökuna upp úr gólfinu eftir að hafa horft á Skrípið í Júró í gær. Ég hélt með Litháen.. vote, vote vote for the winners. Dressman gengið rúlar! :)
Hey beibí! Já, en sniðug tilviljun, voru þið í Whinfell Forest líka? Ég verð nú ægilega skúffuð ef bústaðurinn er slappur því nógu dýrt er þetta nú...
Strákarnir fara austur þ. 10. þannig að frá og með 10. er ég geim í hvað sem er, hvernig er stemmarinn t.d. þ.11 hjá liðinu?
Ég er soooooo sammála þér með Silvíuna, þvílíkt og annað eins. Ég kaus ekki einu sinni Ísland, svo öfugsnúin var ég. Breski þulurinn var nú að reyna að afsaka þetta eitthvað, að hún væri leikkona og fólk væri ekki að fatta grínið. Breski keppandinn vandaði henni hinsvegar ekki kveðjurnar og sagði hana hafa fengið það sem hún átti skilið...
Mér fannst nú best að Selma er enn að tuða yfir Austur Evrópu þjóðunum,þó að nánast allar v-evrópu þjóðirnar séu með í aðalkeppninni. Hún hefur ekki rétta hugarfarið í þetta blessunin. Allt svo miklu betra hérna í denn áður en þessir kommúnistar fóru að troða sér með...en jæja, best að hætta að röfla um þetta. Ég held með Bosníu-Hersegóvínu...
Annars, sá ég þessa rosa stud-mynd af Geira Ólafs í Fréttablaðinu í dag... það er nú bara það eina sem okkur vantar, að senda hann næst.
Eigðu góða helgi beibí og heyrumst endilega fljótlega.
Gaaaarg!!! Sá lika Geir Ólafs... "Til hamingju Ísland. Geir Ólafs í Júróvisjón 2007. Stuðningsmenn." hahaha... svooo augljóst hver borgaði þessa auglýsingu. Flott pósa hjá kallinum!
Mér lýst glimrandi vel á þann 11. mega smart! Best að kýla á dagsetningu svo allir geti bókað daginn.
Og síðast en alls ekki síst þá var ég þarna í Winfell Forest. Ekki hafa áhyggjur af aðbúnaði. Mágkona mín sagði mér að það væri aðeins annar standard hjá bretunum vs. okkur. Ég sá líka í fyrra að þeir voru byrjaðir að taka hluta í gegn. þetta verður voða voða gaman. Þetta er svaka flott krakkafrí! Ég sendi þér mynd að ganni af höllinni sem við vorum í. Við fengum eitthvað tilboð á þessu sem kom í einhverju dagblaði. Þú hefur augun opin. :)
Vill skjóta því inn að þessi Energy saving söngleikur hljómar afar vel. Eins og í bíó. Ég sé þetta alveg fyrir mér! Drengirnir eins og englar á jólakorti að syngja um orkusparnað.
Knús og smús.
Sylvía rokkar þarna afturhaldstittir. Fannst þetta ógeðslega flott sjó.
Við Jessica kusum Eistland, Lettland og Bosníu.
já vá hvað ég er sammála þér edda.. þetta var svakalegt hjá henni Sylvíu OKKAR :) og núna er hún víst á grískri eyju að láta þreytuna líða úr sér þessi elska.
en að allt öðru. Mikið svakalega vona ég að við getum allar hisst í sumar. Það væri alveg stórkostlegt
Hilla Birna
Skrifa ummæli