ldan saknað vina minna meira heldur en akkúrat núna upp á síðkastið. Það er kannski einmitt vegna þess að þegar maður fer að hitta reglulega skemmtilegt fólk, þá rifjast það upp hversu mikið af skemmtilegu fólki maður á í kringum sig heima á gamla klakanum... og hvað er þá best að gera? Fara að undirbúa heimkomu eða að markaðssetja Edinborg sem dvalarstað fyrir fjölskyldu og vini? Koma tímar, koma ráð...en Bruntsfield-garðar eru opnir þeim er vilja kíkja á staðhætti með opnum huga...Ég hef nú svo sem ekki frá miklu að segja, helgin hefur verið róleg hjá okkur. Ég lufsaðist nú loksins og gekk frá hjólapöntun þannig að ef ekkert vesen verður með tryggingarfélagið (insjallah) þá ættum við að fá ný hjól í næstu viku. Í dag er svo Gísli með skólabróður sinn í heimsókn en það play-date var bara ákveðið um miðja viku, svo formfast er þetta allt saman. Svo er ein mamman í árgangnum hans Danna búin að bjóða mér með sér í tennis á miðvikudagsmorgnum. Maður er orðin svo middle-class að það hálfa væri nóg...
Að síðustu verð ég bara að segja frá því að mig rak nú bara í rogastans í gærkveldi þegar ég var að lesa nokkrar lífsreglur fyrir svefninn. Ég er nú alveg að komast að endalokunum og var komin á reglu 83, en reglan sú tekur okkur Íslendinga bara til fyrirmyndar. Hamingjan sanna, einhvern veginn hélt ég nú af öllum þjóðum heims værum við nú ekki framarlega þegar kæmi að lífsreglusetningu, eins materíalisk og við erum nú, en hvað segir höfundurinn?
Jú, reglan heitir Take pride in what we do collectively og hérna kemur brot úr reglunni:
I went to Iceland a while back- fabulous country, very friendly, educational and fun. One thing I did notice was the way they spoke about civic projects. I was in a taxi and we were held up at some road works in Reykjavik. I asked what the road works were about as they seemed to be lowering the road. ‘Ah, yes, we are moving a road here because this road is bad in the winter’. When I was back in the UK I asked an English cab driver a similiar question near Heathrow. ‘Dunno mate, dunno what they are doing there, they’re always digging up the *******roads round here.’
In Iceland they spoke of ‘we’ as in ‘We are doing this’. In the UK it is ‘they’ as in ‘They are doing this’. Interesting.
I’d never considered how we spoke of ourselves to be indicative of how we feel about our community. In Iceland they have a very strong sense of identidy, belonging and community and they speak of ‘we’.
Jassooo, ég verð nú bara að segja það að ég er bara alveg himinlifandi yfir því að þessi ágæti maður skuli hafa þetta impression og það er bara eins gott að hann komist aldrei að því hversu mikil átök eru allajafna í kringum þessi samgöngu- og skipulagsmál heima. Það er verst að þessi öndvegisleigubílstjóri hefur væntanlega ekki hugmynd um hversu góða auglýsingu hann gaf landi og þjóð bara með þessu eina tilsvari. Svo góða að það er bara vitnað í hann af lífsreglufrömuði, sem er nota bene, international bestseller. Sambærileg kynning hefði kostað bara alveg fortune í fínni markaðssetningu því bókin trónir viku eftir viku í efstu sætum sölulista. Hver veit nema fréttirnar af okkar collective identidy auki bara ferðamannastrauminn og ekki veitir nú af að fá fleiri aura í kassann, heyrist manni nú af fréttunum....
Látið nú ekki standa á kommentunum, því gaman væri að heyra hvað þið hefðuð nú um þetta að segja, því fátt finnst nú okkur Íslendingum skemmtilegra en þegar útlendingar eru að mæra land og þjóð...
Góðar stundir honní bonns.
Hilla.
(Myndin er af mér, Tölu hinni jórdönsku og brasilísku Kendru í matarboðinu þar sem gerður var afar góður rómur að matargerð húsfreyjunnar, seiseijá..)

8 ummæli:
Jiii, hvað er gaman að lesa þetta :o). Ég er búin að vera í félagsfræðiáfanga sem tekur einmitt á svona einstaklingshyggju og samfélagskennd og þetta er akkúrat það sem vantaði inn í þau fræði! Við Íslendingar erum öðru vísi!!!
kv,
B
Ju þegar ég sá þessa mynd af ykkur datt mér fyrst í hug "3 systur" Þið eruð eitthvað svo áþekkar þó þið séuð hver úr sínu horninu! Líklega bara dökka fallega hárið:) Já maður er nú bara stoltur af þessum prýðis enskumælandi leigubílstjóra:)
Ju... merkilegt hvað maður verður gasalega stoltur af landi og þjóð þegar það er mært! Er ekki bara sannleikskorn í þessu... ?
ANyways... ég sakna þín líka!!!
Ja hérna það er nú aldeilis gaman að heyra þetta. Þetta gleður þjóðarhjartað eins mikið og maður er alltaf jafn gapandi undrandi yfir fávísi fólks, fréttir síðustu viku þar sem Dorritt greyið var á fullu að reyna að fræða ignorant ísraelskan landamæravörð um að Ísland væri víst til og að við búum ekki í snjóhúsum. Makalaust. En svona come to thing of it þá finnst mér mjög eðlilegt að segja WE þegar við erum að tala við útlendinga, ef téður leigubílsstjóri hefði verið að segja samlanda sínum frá þá hefði hann pottþétt sagt ÞEIR. Þegar kemur að útlendingum þá er Ísland EIN heild ekki spurning.
Ásdís Halla var frábær, ég sat andaktug í tvo tíma og lapti hvert orð, segi þér frá því síðar. Veistu að hún er stjórnmálafræðingur? :) luv ISS
Sælar dömur..jú ég hugsa að það sé nú bara nokkuð til í þessari speki..ég er spennt að heyra af leiðtogafundinum, maður er nú á kafi í þessu leiðtogafræðum núna. Já ég vissi að hún er stjórnm.fr., ég las m.a.s. BA-ritgerðina hennar sem fjallar um það hvort samgönguráðherrar hygli sínum kjördæmum með framkvæmdum meðan þeir eru í embætti og niðurstaðan var marktækt já. Þetta man maður...
Já það er gaman að heyra svona af löndum sínum, ekki bara fregnir af lausgyrtum meyjum og brjáluðu djammi...svona eins og við erum annars þekkt fyrir ;) Þetta er greinilega hið merkilegasta rit...mar ætti kannski að fara að lesa þessa speki :)
Bestu kveðjur...
nú nú það leynist þá spilling á litla Íslandi eins og annars staðar....þvert á það sem er alltaf verið að reyna að halda fram. Hún er dásamlega skemmtilegur fyrirlesari, það má hún eiga. Ekki spurning að hún er góð fyrirmynd fyrir konur.
Hef einmitt oft velt þessu fyrir mér. Hvað það er með þessa sterku samfélagskennd hérna. Hef alltaf tengt það við smæð þjóðarinnar. Þetta er allt svo samkrullað og við erum það fá að það er auðvelt að koma upplýsingum áfram. Og svo þjóðarrembingurinn auðvitað. "In Iceland we have the most bjútífúllest vimmin and the strongest men" "Lýsi, lýsi they scream" o.s.fr.
Á sama tíma...þá reyni ég að varast þetta sjálf eins og heitan eldinn þegar ég tala við útlendinga. Vísa aldrei til okkar sem "we". Finnst það heimóttarlegt og kjánalegt og fer hreint og beint inn í mig af hryllingi þegar ég heyri landa mína stæra sig af landinu við útlendinga á djamminu til dæmis. Pínlegt. Alveg hreint pínlegt.
En það hefur nú ekki alltaf verið þannig. Nei ó nei. Ég var einu sinni uppfull af þjóðarrembingi sjálf. Ég er ennþá stoltur íslendingur en rembingnum hefur verið kastað fyrir róða. Hann er ósmart.
Skrifa ummæli