föstudagur, desember 02, 2005

streita, þreyta...

Er aðeins skárri. Hef beitt öllum ráðum; kyndingin í botni 24/7, búin að drekka sítrónusoð, keypti vítamín-boost, sink og ginko-biloba en hið síðastnefnda á að auka blóðflæði til handa, fóta og höfuðs. Það er vonandi að toppstykkið skerpist svo um munar. Er að verða ansi strekkt því á morgun er hálfur mánuður þangað til ég á að skila ritgerðunum mínum og vera búin að klára aðferðafræðiprófið. Fimmfalt arg!!!!Skal hafast. Annað kvöld ætla ég samt í teiti með samnemendum mínum, svo framarlega sem ég ligg ekki bara heima með óráð en Linda Rós ætlar að gæta drengjanna. Þetta verður þá í annað skipti sem ég geri eitthvað socialt að kveldi til síðan ég flutti. Jibbíjei, má bara ekki detta ofan í púnsinn því þarf svo sannarlega að vera með öll kerti kveikt á laugardaginn...
Ciao ciao, McHilla

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ooooohhhh my....bara fjölþjóðlegt djamm...góða skemmtun en farðu samt ekki að láta neina skó dansa á barborðum:) kv ISS

Nafnlaus sagði...

... hihihihi.. þetta vakti upp skemmtilegar minningar af Lu Glaumbaros. Farðu vel með þig Hillý mín og gangi þér þrusuvel það sem eftir lifir af þessari törn.