Jæja, ég hef nú farið í fjörugra teiti en þetta var samt alveg ágætt. Ég var komin heim kl. 10 og fannst ég bara alveg svakalega villt að vera úti eftir myrkur.
Ég átti eftir að segja frá því að ég er komin með nýja barnapíu! Sú heitir Ashleigh og er skosk stúlka sem er að læra endurskoðun í háskóla hérna rétt hjá. Hún passar fyrir íslenska fjölskyldu sem við kynntumst og ég kunni samstundis vel við hana. Og hvernig komust þau í kynni við hana? Jú, bara með því að hengja upp auglýsingu út í búð! Ef mig misminnir ekki þá var það Elísa sem lagði það til í kommentunum mínum um daginn. Ashleigh var að vinna á kassanum í Scotmid og bara smellti sér í jobbið. Þetta kennir manni það að það er betra að vera ekkert að flækja hlutina um of. Sit annars yfir frekar spennandi verkefni en það er að greina áhrif mass higher education á vinnumarkaðinn. Verður vonandi mikill progress í dag.
Luv. Hilla
laugardagur, desember 03, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

3 ummæli:
Vúúhúú...þetta hefur verið brjálað teiti ;)En það kannski hentar bara vel að fara í stutt teiti þegar nóg er að gera í lærdómnum, hehe...
Hvernig er heilsan annars, ertu búin að hrista þetta af þér ?
Hér eru allir í jólastuði og gormurinn er hæstánægður með að opna sjúkkkulaði-dagatalið sitt...
Bestu kveðjur úr sundinu :)
Gangi þér vel í ritgerðarsmíðum. Það styttist nú óðfluga í að þið komið á klakann. Er Keli komin aftur út? Vonandi reynist síðari pössunarpían betur enn sú fyrri ;)
Knús ISS
Hæ girlies..jaa, ég er ekki alveg búin að hrista af mér pestina, þetta virðist ætla að vera frekar þrálátt. Ég trúi því vel að lillinn sé brjálaður í dagatalið, Gísli hefur aldrei getað átt svona dagatal lengur en dagpart. Þeir eiga ekkert dagatal núna í fyrsta skipti. Keli kom aftur í gær! Rétt meikaði það, svaf næstum yfir sig, það hefði verið ljótt. Við sátum hérna fram á nótt yfir því að hanna healthy menu með Daníel og búa til regnskógartrommu fyrir Gísla, við vorum svo ánægð með trommuna að okkur langaði mest að hafa hana hérna heima bara og berja á hana okkur til skemmtunar. Keli kom með þvílíkar græjur fyrir þetta, leðurbút og hvaðeina...Jæja, það er vonandi að kennarinn verði ánægð, maður er bara svaka spenntur yfir þessu, jæja best að halda áfram.Leitör girlies...
Skrifa ummæli