fimmtudagur, nóvember 03, 2005

Rólegir dagar...

Sæl og bless.
Hef uppgötvað hversu mikil þægindi eru fólgin í því að hafa prentara heima. Algjör löðrandi lúxus. Arnar kom prentaranum hans Árna í gang þegar hann var hérna en ég og prentarinn sá höfum eldað grátt silfur saman síðan í ágúst. Núna prenta ég hins vegar fræðigreinar í lange banen bara hérna heima í gegnum háskólanetið. Hvernig fór fólk eiginlega að fyrir daga internetsins? Svei mér þá, get bara ekki ímyndað mér það.

Hef voðalega lítið að segja núna. Það hefur ekki mikið drifið á daga okkar síðan síðast. Hélt ég væri að fá flensu í morgun og var heima í dag... að prenta. Það var ósköp notalegt. Er að byrja að vinna í ritgerðunum sem ég á að skila í desember. Og svo þarf ég aðeins að herða mig upp í SPSS, er að spá í hvort ég eigi bara að splæsa í forritið og sitja hérna heima á kvöldin og SPSS-ast í Scottish Househould Survey. Ég gæti bara recodað og “dummyað” breytum alveg eins og ég ætti lífið að leysa.

Gísli og Danni eru alveg að blómstra í skólanum og er að fara rosalega fram í enskunni, komnir með fínan breskan hreim og allt. Þeir fá alltaf eitthvað eitt krefjandi verkefni í viku, fyrir utan stærðfræði og málfræði. Í þessari viku á Daníel að fara inn á Energy Saving Trust’s website og skrifa skýrslu um það hvernig hann getur sparað rafmagnið á heimilinu. Bretar eru alveg milljón, alltaf að hugsa um rafmagns- og hitareikninginn. Ég fékk þetta alveg á heilann þegar ég kom hingað og skammtaði tíma í power shower og æddi um allt að slökkva ljós. Síðan hef ég aðeins slakað á, en brá í brún þegar ég fékk rafmagnsreikninginn í dag. Það er því heppilegt að Daníel skipuleggi núna orkusparnaðinn. Gísli hins vegar á að gera verkefni um stríðni. Fjölskyldan á að velta fyrir sér nokkrum spurningum og Gísli á að taka saman svör og semja anti-bullying slogan. Það er vel viðráðanlegt en um daginn átti hann að gera vísindalega tilraun og svara alls konar spurningum um efnahvörf sem reyndi aðeins á ryðgaða efnafræðiþekkingu okkar mömmu.

Jæja, ætlum að eiga rólega og góða helgi og hafiði það nú gott þangað til næst.
Hilla

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaaasalega líst mér vel á þessi project öll sömul. Hafið það hrikalega kósí um helgina.

Við erum að hita upp fyrir Idolið í kveld. Hér er auðvitað hinn vikulegi Idolfagnaður þar sem við bíðum spennt eftir Huldu okkar. Opið hús og komi þeir sem koma vilja.
Later honíbon!

Nafnlaus sagði...

Ég fékk nú pínu flashback þegar þú minnist á SPSS ;) - notaði það ekki lítið þegar ég gerði könnun í öllum (segi og skrifa öllum) framhaldsskólum Reykjavíkur og þurfti svo að eyða tugum tíma í tölvudeild HÍ til að vinna úr niðurstöðunum. Segið svo að maður sé ekki framtakssamur ;).

Hafið það rosa gott um helgina :).
kv,
Birgitta.

McHillary sagði...

Já þú ert framtakssöm frú Brigitte...gengur ekki vel í skólanum? Hvernig gekk Huldu Proppe í Idol Elísa mín?
Vona að þið hafið það gott um helgina?

Nafnlaus sagði...

Hulda mín stóð sig eins og hetja! Hún var rosa flott. En næst sést meira af henni... gaman gaman! :-) Allt í sómanum blómanum hér. Fór á skauta í gær... og datt ALDREI! vá... svei mér þá ef að skauta ástundun forðum daga hafi ekki bjargað einhverju. Ég reyndi samt svona snúninga eins og ég var svo fær í en huhummm... reyni það ekki aftur í bráð. Hafðu það gott beibí doll á þessum dýrðarinnar sunnudegi.
ps. Hvernig er veðrið í henni Edinborg?

McHillary sagði...

Hæ Lísalotta mín. Farðu varlega á skautunum, veðrið hér er dyntótt, eina stundina er sól og hugguleg heit og aðra mígrignir. Það rigndi svoleiðis eldi og brennisteini hérna á föstudaginn en það hangir þurrt eins og er.
Erum að fara hitta íslenska fjölskyldu í dag, fara með þeim niður í bæ og gera eitthvað skemmtilegt, annars hefur þetta verið voða rólegt hjá okkur. Horfðum á íslenska bachelorinn á netinu í gær..spennan magnast, fylgist þú meðþessu?

Nafnlaus sagði...

Herregud.. nei ég hef því miður misst af þeim snilldarþætti. Frétti þó að ein lykilpían hefði verið vótuð út í síðasta episode þannig að það er eins gott að fara að tjúna inn... svo maður tali nú lýtarlausa íslensku!
Annars datt ég inn í Ástarfleygið um helgina. Allamalla... krakkagreyin sprangandi um á naríunum (nb. ein þarna jafngömul okkur). Þau eru nú misfalleg þessar elskur... stelpurnar sumar eins og fiskibollur í bikiníi. Ég ætla nú ekki að leggja lykkju á leið mína til að sjá þá þætti.
Hafðu það gott beibídoll. Mér finnst svo mikið gaman að gylgjast með ævintýrum ykkar í úttlandinu.

Nafnlaus sagði...

Þetta verður ekkert betra (verra) en Temptation Island - allt annað verður hálfgert hjóm í samanburði ;).
Leist vel á Huldu Proppé, hver er þetta eiginlega??? Hún var nú svoldið Elísuættarleg, einhver skyldleiki???

Nafnlaus sagði...

Sammála með Temptation Island. Ohhh manstu Birgitta... the final episode. það var heilög stund!
Hulda Proppe er konan hans Gassa frænda. Ennndilega kjósa hana! ;-) Hennar þáttur verður 16. desember. Hún er svo góð og gflott stelpa.