Hæ elskurnar.
Vil byrja á að óska henni Eddu minni til hamingju með afmælið í dag!! Innilegar hamingjuóskir honní bonn. Þessi dagsetning dregur mig alltaf aftur til grunnskólaáranna því hann Addi gamli skólabróðir okkar á sama afmælisdag og Edda. Og svo eignaðist hún Kristín Hafsteins gamli kennarinn okkar dóttur á þessum degi. Þetta rifjast alltaf upp 7. nóv.
Jæja, ætlaði að blogga góða færslu en er búin að eyða einum og hálfum tíma í morgun í símanum til að fá úr því skorið hvort leigjendurnir mínir geti fengið greiddar húsaleigubætur þó ég eigi lögheimili í Frostafoldinni. Þetta fer að verða eins og baráttan við stofnanir hérna og upplýsingar afar misvísandi. Er því búin að eyða mikilvægum tíma í morgun í annað en að læra og því best að vinda sér í skólabækurnar núna....
Bið að heilsa í bili, Hilla húsaleigusmilla
mánudagur, nóvember 07, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

3 ummæli:
Awwww:) Þetta vermir og hlýjar:) Takk elskan!
Til hamingju Eddan mín! *cyper* knús og kossar og vonandi sjáumst við á sunnudag og þá get ég knúsað þig í raunheimum líka.
Gangi þér vel með lærið Hillan mín... maður verður víst að sinna því öðru hvoru.
Þeink jú miss Minelli!:) Hvað er að gerast á sunnudaginn? Er saumó?
Skrifa ummæli