miðvikudagur, september 28, 2005

Takk kæru vinkonur fyrir ykkar góðu viðbrögð!

Nú espast ég öll upp og blogga af áður óþekktum móð.
Ég hef einsett mér að fjalla ekki um á þessum vettvangi hversu allt sé gott á Íslandi o.s.frv. sem gerir Íslendinga í útlöndum óþolandi. En af því að við höfum gjarnan allt á hornum okkar heima langar mig að mæra það í stuttu máli hversu skilvirkari hlutirnir eru þó þar.
Það tók tæpar þrjár vikur fyrir mig að fá tengt internetið hingað heim sem var afar óhentugt á sama tíma og ég var að klára að skrifa lokaritgerðina mína. Að auki hef ég beðið núna í hálfan mánuð eftir því að opna bankareikning. Til þess þurfti ótal pappíra og staðfestingar og ég veit ekki hvað. Í dag fór ég til að athuga með reikninginn og til að borga nokkra reikninga og kemur þá ekki í ljós að passinn minn hafði verið ljósritaður vitlaust af bankanum. Sorrí sagði stelpan bara, ekkert hægt að gera í þessu og það tekur sólarhring að kippa þessu í lag. Þyngdist nú verulega mín íslenska brún. Stelpan varð vandræðaleg yfir þessum vandræðum öllum en gat lítið gert. Svo kom að því að borga reikningana. Dregur hún þá fram lítinn vasareikni, svona svipaðan þeim sem Gísli hefur með sér í skólann, og byrjar að slá þetta allt inn í hann. Ekki mjög traustvekjandi. Því næst þurfti hún að handskrifa heil ósköp á alla seðlana en ég reikna með að því hafi verið hætt heima svona um 1980, ef ekki fyrr.

Jafn undarlegt fornaldarskipulag er í skóla drengjanna með suma hluti, þar t.d. þarf maður að skila inn miðum og peningum í umslögum fyrir allt aktívitet; skriflegt leyfi fyrir hverri og einni ferð, leyfi fyrir því að barnið fái blood transfusion ef eitthvað fer úrskeiðis og aðrar heilsufarsupplýsingar (hvor um sig fer í ferð nánast vikulega) og matarpeninga í umslögum í hverri viku með the exact amount og svo þarf maður að draga frá ef barnið á að koma með hádegismat vegna ferðalaga.... þetta er bara alveg svakalegt álag að hafa kontról á þessum umslagabisness, merkja þetta allt og reikna út.

Jæja, ég ætla nú ekki að pirra mig á þessu, enda er ég ekkert pirruð í nýja lífinu og tek öllu sem að höndum ber með stóískri ró.
Í gær gleymdi ég að segja frá þeirri stórfrétt að ritgerðinni minni var skilað síðasta fimmtudag!!!Júhúúúú........þvílík hamingja, veit ekki hvorri var meira létt, mér eða mömmu, held að móðir mín sé með ævilangt ofnæmi fyrir hvalveiðum og öllu því tengdu.
Af þessu tilefni fór ég smá ferðalag í NEXT um helgina og gerði vel við sjálfa mig. Að auki hef ég pantað Holistic Massage á snyrtistofu á fimmtudaginn en stofan sú státar sig af því að hafa fengið the british beauty awards sl. fjögur ár.. legg ekki meira á ykkur..
Ykkar Hilla

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Nafnlaus sagði...

Naunaunau mín bara farin að blogga! Frábært...æðislegt að geta fylgst með ykkur hér:) Bestu kveðjur til mömmu gömlu og strákanna.

Nafnlaus sagði...

Nau nau nau... bara komin önnur færsla. Mí læk mí læk!
Ég gratúlera með ritgerðarskil!!!
Þú mátt alveg segja okkur hvað allt er gott á ÍSlandi... þú veist við ELSKUM öll að heyra það! Svo þegar þú kemur heim verður þú kannski akkúrat eins og hinir og ferð að tala um hvað allt var nú brill í útlandinu.
Huuurðu.. saumó hér annað kveld. Mikligarður.. mikið fyrir lítið! Seeya beibí. Knús í kotið.

Nafnlaus sagði...

Já það er margt skrítið í útlandinu, það eru ekki öll lönd eins tæknivædd og gamla skerið.

En þú skemmtir þér bara við umslagapeningatalningar í vetur.

Til lukku með skilin, þú ert hetja.

Knús
Inga Sa