þriðjudagur, september 27, 2005

Heil og sæl kæru vinir og vandamenn.

Jæja, þá byrja ég formlega loksins að blogga. Þannig var að ég hafði nú stofnað til annarrar síðu í sumar: mchillary.blogspot.com. Einhverra hluta vegna komst ég ekki inn á stjórnsíðuna þegar ég ætlaði að byrja að blogga nú í nýja lífinu og missti ég þá móðinn um stund. Nú hins vegar er ég tvíefld með þessa nýju.

Í dag eru fimm vikur síðan við mættum hér fjögur saman; ég, Keli minn og strákarnir, búin að sóla okkur á Ítalíu í 10 daga og eiga yndislegt frí. Það er óþarfi að lýsa því frekar hér en áhugasamir geta skoðað ferðalagið okkar myndrænt inn á www.barnanet.is/1777 þar sem ég hef nú hjálparlaust hlaðið inn myndum af ferðum okkar. Og hvað beið okkar hér; ískalt hús og engin búslóð vegna mistaka Samskipa. Smám saman fór þetta nú að raðast saman, okkur var kennt á kyndinguna og við fengum sængurnar okkar og restina af þeim eigum er áttu að fylgja okkur. Við fórum að venjast íbúðinni og hún okkur og í dag líður okkur vel í nýja lífinu. Íbúðin er núna hlý kvölds og morgna og er falleg og vel staðsett, innst í botnlanga í einu rólegasta hverfi borgarinnar. Ekki skemmir svo fyrir stóri garðurinn sem við höfum afnot af.

Strákarnir voru afar heppnir með skóla og eru alsælir í Sciennes Primary School sem fékk The Edinburgh Award for High Education í fyrra og ég veit ekki hvað. Aginn er töluvert meiri en heima og börnin liðast eins og litlir englar um skólann. Yfirkennarinn fylgist vel með og er alveg “delighted” yfir því hvað börnin eru góð og skólinn góður og hvað það er gaman að vera hluti af "the Sciennes Family". Bekkirnir eru stórir, tæplega 30 krakkar á kennara og allir sitja stilltir og prúðir og þetta virðist allt ganga prýðilega. Einnig er foreldrum boðið í osta og vín með kennaranum í upphafi annar að kvöldlagi. Sem sagt allt töluvert ólíkt því sem maður á nú að venjast.

Skólinn minn byrjaði á fullu í síðustu viku. Hópurinn minn er mjög alþjóðlegur svo ekki sé meira sagt. Við erum svona ca. 20 talsins í prógramminu og komum úr ólíkum áttum; Kína, Brasilíu, Bretlandi, Kajastan, Georgíu, Írlandi, Kýpur, Þýskalandi, Rússlandi, Jórdaníu og svo eru nokkur frá Bandaríkjunum. Held að þetta verði áhugaverður vetur. Ég er svona aldurslega aðeins yfir meðallagi, giska á að þau séu svona flest um 25-27 ára. Svo er ég og einn Íri sem er frávillingur, því hann er um fimmtugt og er í starfi hjá hinu opinbera í Írlandi. Þar ku allt vera overheating efnahagslega og hann segir okkur öll geta fengið vinnu þar að náminu loknu. Gott að vita af því. Við erum svo öll með einn supervisor sem verður okkar hægri hönd í náminu og kennir einn kjarnakúrsinn. Sá heitir Richard og er afar imponeraður yfir því að ég sé fyrsti Íslendingurinn í þessu prógrammi. Þar að auki hefur hann nýlega heimsótt Ísland og er afar áhugasamur um land og þjóð. Richard bauð okkur hópnum sínum í kampavín eftir fyrsta tímann á fimmtudaginn síðasta sem var afar notalegt...

Jæja, langar bloggfærslur eru óþolandi og ég hef þetta ekki lengra, þá nennir enginn að lesa. Ætla nú að heita því að vera dugleg að blogga og endilega skrifiði nú einhver komment til mín svo ég verði nú ekki hér að tala við sjálfa mig. Annars er spennandi að fylgjast með Jónínu Von Bónus og félögum. Sú kerla beitir gamalkunnu ráði til að fá sínu framgengt. Ojojjjojj...köld eru kvennaráð, það sannast nú víst hér. Við mamma horfum nú alltaf á fréttir í beinni og þetta er meira spennandi en Taggart.
Kossar til ykkar allra, Hilla litla og fjölskylda


P.s. ef einhver veit hvernig á að setja myndir í þennan prófile og á þetta template endilega deilið því með mér, kann ekkert á þetta, hægt er að koma þeim upplýsingum til mín í hinu áðurnefnda kommenta kerfi eða á mail, nota ennþá póstinn minn: hildusi@hi.is

9 ummæli:

McHillary sagði...

ætla nú að reyna að kommenta sjálf þar sem ég fékk ábendingu um að þetta virkaði ekki....

McHillary sagði...

jú! virkar fínt

Nafnlaus sagði...

Æði, hlakka til að fylgjast með ykkur!
Kv. Harpa.

Nafnlaus sagði...

:) sniðugt.
Já kennararnir hér eru nú ekki að bjóða upp á kampavín eða osta.... nei nei þeir eru svo bitrir vegna launanna sinna þeir eyða nú ekki peningum í svona lagað!
á eftir að kíkja á ykkur :)
kv. Ásta

Nafnlaus sagði...

Blessuð Mac Hill. How´s life in Germany?
Gasalega hljómar þetta allt spennó. Þú ert sko komin í favorites hjá mér!
Voðalega eru bretarnir líbó... kampavín og ostavín og meira vín. Með þessu áframhaldi endar þetta á hvítvíni og ostum á föstudagshádegi eins og í leikskólum í Danmörku. Hikk!
Mikið er ég stolt af þer elsku vinkona að hafa drifið þig á vit ævintýranna. Þessi vetur á eftir að vera ógleymanlegur hjá ykkur öllum. Þú ert svo dugleg og drífandi stelpa mín!
Hlakka til að fylgjast með ykkur. Vertu dugleg að blogga beibí!
Kv, Lísalotta
ps. Sammála með spennutryllinn Baugur and the Bjútíful Jónína. Maður bara má ekki missa af einum episode... þetta er svo spennó!

Nafnlaus sagði...

Sælar svítý

Ég er búin að rúlla gegnum allar myndirnar og sé að Ítalía hefur verið æði. Ég mun að sjálfsögðu fylgjast með ykkar högum hér í blogglandinu góða.
Það var einn hér í vinnunni sem heldur því fram að sturlungaöld hin síðari væri hafin, þar sem Jónína Ben gæfi formóður sinni Guðrúnu Ósvífursdóttur ekkert eftir þegar kæmi að kvennabrögðum :)
Kveðja til ykkar Skotverja, það verður nú að segjast að það eru nú tómleg barnaafmæli og saumklúbbar á skerinu án Hillary og föruneytis.
Knús til ykkar Inga Sal

Nafnlaus sagði...

Já Inga... skemmtileg pæling. Jónina Ben A.K.A. Guðrún Ósvífurs A.K.A. Sue Ellen... sem átti nú góða spretti.

Nafnlaus sagði...

Hæ darling
Flott bloggsíða hjá þér og myndirnar æði. Íbúðin er svakalega smartleg og þið virðist hafa það gott. Er búin að veltast um af hlátri yfir sögunni um 5 to 9! Gott að náðist að leiðrétta misskilninginn í tæka tíð.
Verður spennó að fylgjast með ykkur úti í hinum stóra heimi :-)

Nafnlaus sagði...

Úps
gleymdi að bæta við.. mikið er ég fegin að þú ert jafnskemmtileg á ensku og íslensku!