föstudagur, apríl 06, 2007

Páskar í kössum..



Stemmningin þessa dagana er svolítið eins og við munum ekki komast í verslun aftur fyrr en eftir mörg mögur ár. Pottar, pönnur, diskar og annað dót, kassarnir fyllast hér hver á eftir öðrum. Næsta fimmtudag fylli ég svo sendibíl sem leigður hefur verið og við Arnar leggjum í langferð niður til Immingham með herlegheitin til að koma þeim á skip. Til allrar hamingju fyrir mig er opið hér í verslunum alla páskahelgina. Spáiði í því, enginn langur föstudagur og það er hægt að tæta hér allt úr hillum frá morgni til kvölds á sjálfan páskadag. Fólk var bara hálfhvumsa í gær þegar ég fór að spyrja út í opnunartímann yfir páskahelgina. "Við erum hér í þjónustu og það þarf að sjálfsögðu að vera opið" sagði afgreiðslukonan í GAP eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ja hérna, það er nefnilega það. Ég held m.a.s. að það sé núna að fara í gegnum skoska þingið frumvarp um að verslanir geta haft opið á jóla- og nýársdag. Helgislepjan er ekki að fara hér með fólk, enda litróf trúarbragðanna líflegt. En þótt allt sé stöðugum breytingum háð, þá finnst mér nú í lagi að halda aðeins í hátíðleikann...

Í vetur var ég ræða um fermingar við samstarfskonur mínar og hvernig þetta væri hér, hvort börn væru almennt fermd. Þær komu alveg af fjöllum og héldu að þær tíðkuðust ekki nema kannski hjá fólki sem væri mjög trúað og hvernig þetta væri með Íslendinga, hvort við værum þá agalega trúuð fyrst nánast öll börn á Íslandi væru fermd með miklu húllumhæi. Og hverju svarar maður því? Nei, við erum alveg trúlaus upp til hópa og allar kirkjur eru tómar meira og og minna á öðrum árstímum. Fermingar snúast um allt annað en staðfestinguna sjálfa og er orðið svo rótfast hagsmunanet að það er ekki sjéns að brjóta það upp. Allir græða efnislega nema kannski foreldrar fermingabarnsins en ánægjan sem fylgir því að sjá afkvæmið hamingjast í peninga- og tækjagjöfum við upphaf fullorðinsáranna fóðrar tóma budduna. Jæja, kannski er þetta ekki alls staðar svona og ég ætti nú sennilega að tala varlega þar sem ég verð nákvæmlega í þessu stússi að ári liðnu og verð alsæl með fermingardrenginn minn. Mér fannst það hinsvegar athyglisvert að hlusta á viðtal við sölumenn í einhverri tækjabúð í Íslandi í dag um daginn. Þar voru þeir að kynna Play Station 3 og héldu jú að græjan væri nógu dýr til að geta verið fermingagjöfin í ár. Í fyrra kostaði Play Station 2 nefnilega ekki nógu marga þúsund kalla til að geta selst sem gjöf handa fermingabörnum. Sennilega blandast nú inn í það sú staðreynd að það eiga sjálfsagt flestir krakkar það módel nú þegar, en samt er örugglega að finna sannleikskorn í þessu.


Sumarið er hinsvegar komið og síðustu dagar hafa verið hreint út sagt dásemdin ein. Gæti ekki verið betri umgjörð utan um það að hleypa enn meiri sól og gleði inn í lífið. Þessar síðustu vikur hér eru blanda eftirvæntingu og eftirsjá. Þegar maður stendur svona alveg á þröskuldi nýs kafla þá er erfitt að kveðja allt og alla sem hafa litað dvölina okkar hér sterkum litum. Kveðjustundum fylgir alltaf angurværð því ekkert verður einhvern veginn aftur eins. Í fyrrakvöld átti ég kveðjudrykk með tveimur amerískum vinkonum mínum er voru með mér í náminu en þær halda senn aftur vestur um haf. Við Villa áttum einnig okkar síðasta hvítvínsfundinn hérna við eldhúsborðið og rýndum í rúnir. Það virðist vera gegnum gangandi að fólk á erfitt með tilhugsunina um að yfirgefa Skotland, en í einhverju páskaegginu kemur líklega upp það gamla góða gullkorn að hætta beri leik þá hæst hann standi. Þegar fram líða stundir verður kannski himininn yfir Montpelier Park ekki alltaf jafn blár, grasið á Meadows ekki jafn grænt, og gangbrautarvörðurinn minn ekki jafn kátur á hverjum morgni. Svo heyrir maður ekki annað en Hafnarfjörðurinn hafi verið litríkur að undanförnu. Gæti ekki verið betri tímasetning fyrir mig, enda aldrei verið mikið fyrir lognmollu.



Á þessum morgni, óska ég ykkur öllum gleðilegra páska! Hafið það öll sem allra allra best. Og mikið sem ég hlakka til að knúsa ykkur fast elskurnar. Nú er hinsvegar bara klukkutími þangað til hingað kemur fólk sem verður knúsað fast því á þessari stundu gætu foreldrar mínir verið að lenda í Glasgow. Á morgun erum við svo að fara á fund hálandahöfðingjans og ætlum jafnvel að athuga hvort við sjáum einhverjar væringar við Loch Ness.

Ást og kossar eins og alltaf,
Hilla

3 ummæli:

Unknown sagði...

Mikið var þetta góður pistill krúslan mín. Miklar breytingar í vændum og ýmsar tilfinningar sem því fylgja.
Hafið það ljúft um páskana með foreldrum þínum og njótið síðustu dagana.
Hlakka hrikalega mikið til að sjá þig og þína og eiga góðan eldhúsfund í Stekkjarhvammi.

Nafnlaus sagði...

Jahérnahér það fer að styttast í þetta hjá ykkur. Hlakka til að sjá þig. knús Ásta

Nafnlaus sagði...

gleðilega páska mín kæra! vonandi eru þið búin að hafa það gott. ég er með stóra bróður í heimsókn sem lék páskakanínuna í ár, kom með páskaegg og lambalæra! kjammskjamms.

ég er loksins búin með síðustu ritgerðina og því ætti það ekki að vera mikil mál fyrir mig að vippa dótinu til þín. ef þú ert ekki störfum hlaðin og upptekin við að sinna fólki, þá gætum við jafnvel nælt okkur í kaffibolla eða..?
kv. Lína.