...felst ekki í að nema ný lönd heldur að horfa með nýjum augum.
-Marcel Proust-
Þetta er viðeigandi fyrirsögn á síðustu færsluna mína en með henni lýkur bloggferli mínum, allavega í bili. Síða þessi var fyrst og fremst hugsuð sem annáll yfir þetta ferðalag sem nú er senn á enda og hefur því þjónað sínum tilgangi. Ég mun eflaust skrolla í gegnum þessi skrif í framtíðinni þegar hugurinn mun reika aftur til Edinborgaráranna. Nú er íbúðin okkar í Montpelier Park orðin tóm og við þrjú erum spennt og angurvær í bland og ýmist tilbúin eða ekki. Fólk er alltaf að flytja þvers og kruss og ég hef aldrei spáð neitt svo sem í það að þetta væri eitthvað sérstakt tilfinningamál. Sjálfsagt upplifir fólk þetta misjafnlega en mér finnst þetta voðalega tilfinningaþrungið allt saman.
Og hvað hefur maður svo lært á þessu öllu? Ég gæti nú skrifað svo langa ritgerð um það að ég myndi drepa ykkur úr leiðindum. Það er því best að vera bara stuttorður. Þessi tími hefur verið krefjandi og kennt okkur óendanlega mikið um okkur sjálf. Eitthvað sem við munum búa að alla ævi. Og auðvitað komum við heim alveg helmingi skemmtilegri en við vorum vön að vera. Gleðin getur byrjað strax þegar við rúllum út úr vélinni seinnipartinn á sunnudaginn og því gott að minna á að ég verð með sama gsm-númer og áður.
Og alltaf er að eiga sér stað persónuleg framþróun. Ég er nánast búin að ganga alveg frá íbúðinni og verð ekki að hamast við að þrífa og fínisera fram á síðustu mínútu. Ég er þekkt fyrir að vanmeta aðeins svona framkvæmdir. Þegar ég flutti úr Bruntsfield Görðum ætlaði ég rétt að tína saman nokkra hluti síðasta kvöldið. Við Arnar enduðum í leigubíl um miðnætti og bílstjórinn pakkaði okkur inn í bílinn í orðsins fyllstu merkingu. Við vorum gjörsamlega koveruð í dóti svoleiðis að maður gat sig hvergi hrært sem var frekar óþægilegt því ég fékk óstöðvandi hláturskast yfir því hvað þetta væri kómískt alltsaman. En núna kveður við annan tón og á morgun ætlum við bara að spóka okkur niðri í bæ og sleikja sólina en það á víst að vera ægilega gott veður. Kannski maður geti splæst í einhverjar sumarpjötlur, hver veit. Lengi er hægt að bæta á sig tuskunum.
Að síðustu, ástarþakkir fyrir öll kommentin, hvatninguna og skemmtilegheitin. Það var alveg dásamlega gaman að þið skylduð fylgjast svona vel með okkur.
Hlakka alveg hræðilega mikið til að hitta ykkur og eiga framundan mikið gleðisumar.
Ykkar, McHilla.
föstudagur, apríl 13, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

10 ummæli:
Elsku hjartans Hildur mín.
Það er búið að vera frábært að fylgjast með ykkur hér á síðunni. Þetta er búið að vera hluti af bloggrúntinum í langan tíma og með þessu hef ég fengið miklu betri tilfinningu fyrir dvöl ykkar í þessu ævintýri. Takk fyrir símaspjöllin, margar góðar stundir á msn, marga góða hittinga í fríum á Íslandinu og svo ég tala nú ekki um magnaða ferð okkar Ingu og Guðnýjar til þín síðasta sumar. Sú verður lengí í minnum höfð!
Nú taka við nýjir og skemmtilegir tímar hjá familíeunni í Stekkjó. Ég hlakka til að fylgjast með ykkur.. í návígi til tilbreytingar.
Knús og kveðja til ykkar allra!
Ég hlakka svo mikið til þessa að sjá ykkur.
Sammála síðasta - búið að vera frábært að fylgjast með ykkur og ævintýrum ykkar þarna úti. Mér finnst nú ekkert endilega að þú eigir að hætta að blogga þó þú flytjir heim, það er alltaf jafn gaman að lesa skrifin þín og ég býst við að það breytist ekkert hvar sem þú býrð í heiminum.
Bíð spennt eftir næsta saumó eða hittingi :).
B
Sammála síðustu 2! Knúskveðjur og sleiktu sólina því þú veist aldrei hvar þú hefur hana hér... en ef þú mögulega getur taktu hana með þér! :) lovjú Ásta
nei nei þú mátt ekki hætta að blogga. Nú verðurðu að rita niður þá merkilegu hversdags atburði sem henda þig á Íslandi fyrir okkur hin sem búum í útlöndum. Þú ert svo frábær penni að það væri alveg synd að hætta.
Gangi þér vel með framhaldið, það hefur verið mikið ævintýri að fylgjast með þér hér, sér í lagi þar sem ég var nú "að uppgvöta" þig upp á nýtt - ef svo má segja.
kærar kveðjur
Dísa í DK
Jæja kæru fyrrverandi nágrannar, þá er orðið tómlegt í Edinborginni. Það var frábært að fá að deila þessu útlanda-ævintýi með ykkur og við eigum eftir að sakna þess að hitta ykkur, fara í bæinn saman, borða saman og spjalla saman. Gangi ykkur vel í nýja lífinu og í því sem þið takið ykkur fyrir höndum. Hlökkum til að sjá ykkur í maí :)
Knús og milljón kossar
Einmana Edinborgarar
Samgleðst bæði og syrgi yfir brottför ykkar héðan frá fallegu Edinborg; hlýtur að vera spennandi að koma heim í öll nýindin en óskaplega á ég eftir að sakna hvítvínskvöldanna okkar! Jæja, við sjáumst allavega í sumar þegar við komum heim á klakann núna, en svona þér að segja þá var hér í Edinborg á brottfarardaginn ykkar 15. apríl, 18 stiga hiti og sól frá morgni til kvölds. Búin að vera í garðverkum í lognmollu og æðruleysi allan daginn - meira hvað þetta líf er yndislegt. Mundu að heimsækja mig á bloggið mitt um leið og þú ert komin í samband við netheima, tel dagana...
Hey! Hér kemur ógisslega góð huuumynd (eins og Elvar myndi segja) ;)...okkur finnst að þú eigir að blogga aaaðeins lengur...við værum til í að geta fylgst með ykkur úr fjarlægð þegar þið komið ykkur fyrir í Hafnarfjarðarbæ ;)
...bara svona hugmynd;)
Kveðja frá Bólu-Hjálmari og foreldrum
já eiginlega algjört möst að þú haldir áfram að blogga styð þá hugmynd þó ég sé stödd á sama skeri og þú! Held maður heyri minna af þér þess vegna og sér í lagi ef þú hættir að blogga!
:) Ásta
Takk fyrir þessar kveðjur elskurnar, gvvvuð ég lyftist öll upp við þetta náttúrulega og endurskoða ákvörðun um bloggstopp. Sjáum hvað setur þegar maður er búin að koma sér betur fyrir. Þetta lofar allt góðu, við fáum íbúðina um aðra helgi og erum fram að því í Mávahlíðinni. Strákarnir eru búnir að heimsækja nýja skólann og byrja þar á mánudag. Okkur leist öllum svaka vel á það allt saman. Svo erég búin að hitta alla í nýju vinnunni og byrja á mánudaginn. Það kviknaði í miðbænum á sama andartaki og ég gekk inn á nýja vinnustaðinn á Fríkirkjuveginum. Doldið magnað.
Ástarkveðjur til ykkar,
Hilla
nOh alveg rétt við erum nágrannar í augnablikinu.... :) er sjálf í Barmahlíð :) Kolbrún sem er að skreppa til Edinborgar bráðum :)
Skrifa ummæli