sunnudagur, mars 04, 2007

Ferð til fjár??


Litli drengurinn minn mun dveljast í Benmore á vesturströnd Skotland næstu 5 dagana ásamt skólasystkinum sínum í P6 árgangi. Þar á hann að efla færni sína í allskyns activitetum og náttúrulega líka í því að bjarga sér sjálfur. Hummm, mamman er svolítið áhyggjufull og litli drengurinn líka enda stutt síðan að hann fór í næturheimsókn sem framkallaði heimþrá mikla. Ennn, það góða er skilst mér að það er víst sjoppa á staðnum og það má taka með smá aur til að kaupa gotteríi. Svo er þetta víst agalega skemmtilegt segja kunnugir og við erum sammála um að þetta verði óggesslega gaman. Staðurinn er reyndar svo ægifallegur að maður verður bara hálfabbó. Það er eiginlega alveg synd hvað maður hefur séð lítið Edinborgar og ég á vesturströndina alveg eftir.
Það stendur nú reyndar til bóta. Nú fer nefnilega tíminn hér að styttast. Ég fæ nú reyndar svolítið í magann þegar í hugsa um það að þetta ævintýri sé senn á enda. Enn stórfréttir síðustu daga eru þær að ég festi kaup á fasteign eftir skottúr minn til Íslands um síðustu helgi. Það er bara ekkert annað. Prýðisbærinn Hafnarfjörður fær þrjá öndvegisíbúa nú með vorinu. Nýja hæðin mín sem er nánar tiltekið í Stekkjarhvammi er sérlega falleg, eins og stóð í lýsingunni, og alveg passleg fyrir okkur á þessum tímapunkti. Ég fæ afhent í síðasta lagi 10. maí þannig að ljóst er að við verðum komin heim á þeim tíma. Maður hefur því ekki lengur ótakmarkaðan tíma til að skoða þá staði í Skotlandi sem maður má alls ekki fara án þess að hafa séð.
Á næstunni hef ég í hyggju að skreppa aðeins með strákana yfir í hálöndin yfir nótt og svo ætlum við að leggjast í ferðlag norður á við þegar mamma og pabbi koma í heimsókn um páskana. Í dag var samt skref stigið í þá átt að víkka sjóndeildarhringinn, en við Arnar fórum í rúnt aðeins hérna yfir í Rosslyn kastala og til Musselborogh en ég var alveg staðráðin í því að kíkja í þann síðarnefnda bæ áður en ég héldi fyrir fullt og allt yfir hafið. Það var nefnilega þannig að við hittum feðga frá Musselborogh í lestinni heim frá Ibrox í okt. sl. Við fórum að spjalla og þegar pabbinn sagði okkur hvar þeir byggju fór ég að blaðra út í loftið eins og ég á nú stundum vanda til. "Já já, við höfum ferðast svo lítið um Skotland, bara búin að vera hér í rúmt ár", sagði ég og pabbinn varð svolítið undarlegur en beindi síðan talinu að eftirnafni þeirra feðga sem var afar sérstakt svo ekki sé fastara að orði kveðið; Kilboy. Ég hélt samt áfram; "Hvaða fótboltalið er þarna í Musselburgh?" spurði ég og ég tók eftir því að Daníel seig dálítið neðar í sætið. Jaa, bara það sama og í Edinborg, sagði Hr. Kilboy og var svo greinilega að reyna að átta sig á því hvort ég væri alveg dofin. "Musselburgh er bara rétt fyrir utan Edinborg, svona bara eins og Hafnarfjörður" sagði Daníel þegar við höfðum kvatt Kilboy feðgana á Waverly stöðinni. Ja hérna, hugsaði ég, maðurinn heldur að ég sé alveg úti að aka (og sennilega rétt mat), búin að búa hér í meira en ár og talaði bara eins og bæjarskömmin væri úti í Orkneyjum. Síðan hef ég veitt því athygli að það stendur Musselburgh nánast utan á öðrum hvorum strætisvagni sem keyrir framhjá mér daglega. Ein dálítið soðin.
En það ótrúlega gerðist nú að þegar við héldum í aðra Ibrox-reisu um þarsíðustu helgi að við bara hittum enga aðra en Kilboy feðgana aftur í neðanjarðarlestinni í Glasgow og vorum samferða þeim í lestinni til Edinborgar. Það var dálítið magnað því það voru yfir 40 þús manns á leiknum. Þeir heilsuðu hressir og kátir en við sátum ekki hjá þeim á leiðinni eins og síðast, og ég gat ekki komið upp um það frekar hversu illa ég þekki umhverfi það sem liggur utan við minn daglega radíus. Kannski eins gott. En í dag fór ég semsagt til Musselburgh sem er frekar lítið spennandi svo sem og sá ekkert til Kilboy feðga. Kannski er ekkert hægt að líkja honum við Hafnarfjörð. Þar er stuðið nefnilega rétt að byrja.
En jæja, eigiði góða vinnuviku framundan, ég er að hefja enn eitt samningstímabilið mitt hjá Children in Scotland og þarf að ákveða á morgun hvað ég á að skuldbinda mig lengi í þetta skipti. Humm, ætla að sofa á því í nótt.
Luv, Hilla Hafnarfjarðarpilla.

6 ummæli:

Kolbrún sagði...

og er eitthvað að frétta af vinnumálum?
og til hamingju með íbúðina hún er bara rétt hjá mömmu minni!

Nafnlaus sagði...

Morning sunshine!

Kvitt kvitt.

Elísa

ps. Það er fræg sagan í um manninn í Vestmannaeyjum sem kom heim eftir að hafa dvalið ár í útlöndum og honum fannst allt í einu allt svo lítið og sveitó. Hann vatt sér að næsta manni og sagði með miklum hreim:" fyrirgefðu en getur þú sagt mér hvar pósthúsið er?" Svona verður þú kannski?! hmmmm....

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Til hamingju Hafnarfjörður!!! Guðisélof að ég átti einu sinni vinkonu þarna í Hvömmunum, annars ættum við varla eftir að sjást á Klakanum eftir að heim kemur... Annars er ég líka að vonast til að geta hitt þig í lönsj þegar þú verður komin með vinnu í 101 (?!) Bestu kveðjur úr Gilmore kastala, Villa

Nafnlaus sagði...

til lukku með allt, þetta hljómar afskaplega spennandi. og hafnarfjörðurinn er hýr, það veit sú sem hefur búið þar síðustu 22 árin, svona nánast. reynum að hittast sem fyrst, ég, þú og línafína?

kv, sísí

Nafnlaus sagði...

Ju til hamingju með þetta kona! og já ég segi eins og fleiri TIL HAMINGJU HAFNAFJÖRÐUR! Þú nærð kannski að kjósa um Álverið???
luv, Ásta

Nafnlaus sagði...

Hafnarfjörður átti það nú að vera