...rjóma!! hérna megin. Ég átti að vera í office partíi í kvöld en það varð að cancellera því á síðustu stundu. Þess í stað komum við heim hér eins og venjulega og erum búin að baka pönnsur og brownies og slafra í okkur með miklum rjóma ...sko alveg á ljóshraða. Jummmmííí!! Svo drekkur maður bara dálítið detox á eftir og þá bara festist þetta ekki einu sinni á bumbunni. Ekkert smá huggulegt. Þegar maður fer svona lítið út þá er því ekki að neita að ég er bara löt við að fara eitthvað út eftir tea-time, svei mér þá. En það á að gera aðra tilraun í skrifstofu-drykk&dinner eftir hálfan mánuð. Þá verð ég úthvíld eftir vikufrí og og í geðveikum gír. Svo er bara jólatjútt hjá samtökunum áður en ég hætti um miðjan desember og það verður nú spennandi að sjá hvernig það stenst samanburð við slíkar samkundur er maður hefur nú setið í gegnum tíðina.

Annars er allt að verða svo jólalegt hérna að maður getur ekki annað en komist í jólafíling. Það er allt í jólaskrauti í öllum krúttlegu búðunum upp á Bruntsfield Place og ég er m.a.s. búin að setja upp ljósakrans í eldhúsgluggann. Ekkert smá hvað það munar nú miklu þegar maður er að vaska upp. Geri það bara með töluvert meiri gleði. Gvvvuð hvað þetta uppvask er annars endalaust, neita því ekki að ég hugsa stundum með talsverðri eftirsjá til uppvöskunarvinkonu minnar í Bruntsfield-görðum. En hvað um það, það góða er að synir mínir eru farnir að vaska upp eins og herforingjar og svo sjá þeir um að ryksuga heimilið líka þessar elskur. Það er nú ekkert lítið hvað þeir verða góðir kostir.
Luvvv í bili, Hilla smilla
5 ummæli:
Góður punktur þetta með detoxið, ég habbði bara ekki fattað þetta! Spurning um að ná sér í eitthvað gúmmelaði og detox...
B
Brilliant hugmynd þessi með detoxið. Kemur sér vel á komandi vikum þegar gúmmulaði drýpur af hverju strái.
Jiii..... það verður gaman að heyra hvernig skoskt jólatjútt fer fram. Það stenst náttúrulega fátt samanburð við rammískenskt jólatjútt með tilheyrandi uppsölum á jólaskraut í ónefndri göngugötu :-)
LOL!!! skellti upp úr í vinnunni þegar ég las kommentið þitt Unnsa mín, en ákvað að deila ekki gleði minni með samstarfskonunum. Ég vil ekki að öllu skrautinu verði pakkað ofan í kassa hið snarasta og allt bara fóðrað með plasti. Ég er ekki viss um að framkvæmdastýran í samtökunum mínum hefði húmor fyrir útældu jólaskrauti. Leyfi mér að efast um það reyndar.
Ef mig misminnir ekki var þetta á sama tjútti og ég gaf þér geisladiskinn og við dönsuðum inn í tunglsljósið. Djöfull var annars gaman þegar maður var að skandalisera. Nú er maður bara hættur því. Og því hefur nú hlátursköstunum fækkað...sem er slæmt.
En drekkiði eins mikið detox og þið mögulega getið báðar tvær, það er allra meina bót...
Með jólaskrautskveðju,
Ó jú mín kæra það var á því jólatjútti sem þú gafst mér diskinn góða og í þessum skrifuðum orðum hljómar lagið bara í útvarpinu eins og ekkert sé!!!!
Já þeir gömlu góðu skandalsdagar..... Ef maður bíður bara nógu lengi getur maður hlegið að þeim eins og gáfaðasti læknir landsins lét hafa eftir sér!!
Heyrumst fljótlega darling :-)
Það er ekki laust við að jólastemmningin sé aðeins að koma yfir mann.
Við getum nú alveg málað bæinn allavega ljós rauðann þann 29, er þaggi? Mikið verður gaman að sjá þig Hillý mín um jólin.
Kíkti inn á heimasíðuna hjá Save the children....og líst mjög vel á, þetta er greinilega mjög spennandi verkefni þarna í gangi.
Knús og hug Inga
Skrifa ummæli