
Ja hérna hér, ekki undra ég mig nú á því að geðslagið sé aðeins lækkað fyrir þá sem hafa setið fastir í þessu íslenska sumri. Mér finnst nú reyndar rigningin góð en rokið er ekki alveg minn tebolli og þessi combination dag eftir dag er nú fullmikið af hinu góða.
En jæja, tíminn hér þýtur áfram. Elsku drengirnir mínir fóru austur á mánudaginn og ég hef setið hérna við tölvuna, á milli þess sem ég hef tekið viðtöl fyrir ritgerðina og hitt skemmtilegt fólk. Besta viðtalið tók ég tvímælalaust í gær, alveg glær eftir einkar skemmtilegt grillteiti kvöldið áður. Viðtalinu var stýrt af þvílíkri röggsemi að ég velti því fyrir mér eftir að ég hlustaði á bandið hvort kollurinn á mér myndi ekki skerpast bara við aðeins meira hvítvín...en það stendur að sjálfsögðu ekki til að fara að auka það svo neinu nemi...
Nema kannski bara rétt á meðan 5 daga húsmæðraorlofi Ingu, Guðnýjar og Elísu stendur yfir í Edinborg en það hefst með mér á miðvikudagsmorguninn 5 AM.. Jibbíjeii..sérstakt húrra fyrir Valtý sem hafði frumkvæði af því fyrir stuttu að Elísa kæmi með. Gvvuð hvað það verður gaman. Sushi og pöbbar hægri vinstri á milli þess sem ritgerðartakturinn verður sleginn að sjálfsögðu. Það skal sko verða notalegt hjá okkur í Bruntsfield-görðunum og þá kemur það sér vel að vera búin að panta nokkar gamla góða 90s diska svo við getum rifjað upp öll gömlu góðu partýin í Rituhólunum en hápunkturinn mun nú hafa verið á árunum 1990-1992, er það ekki rétt munað hjá mér?
Það er verst að ég sleit sturtuspottann (maður þarf að kveikja á henni með streng) rétt áður en ég kom hingað núna og sturtan er óvirk í augnablikinu þannig að þið vitið af því stelpur mínar, ef ég skyldi nú gleyma að segja frá því fyrirfram. Til vonar og vara er betra að vera búin að fara í eina góða shower fyrir ferðalagið.
En við kölluðum ekki allt ömmu okkar hérna í gamla daga og hljótum að geta fixað þetta með samstilltu átaki.
Lov jú darlings, Hilla litla.

6 ummæli:
Ojjj fojjj - mikið verður gaman hjá ykkur!!!
B
blessuð við kippum okkur ekki upp við það....eru ekki fullt af brunnum þarna á hverju götuhorni í Edinborginni;) ISS
ojjjattan hvað það verður gaman hjá ykkur! Njótið þess í botn bara og sláið við Rituhólapartýunum... eða nei annars .... behave!
Góða skemmtun dúllurnar mínar!
kv. Ásta
Hæ gellur, jú geggjað stööð skal það vera en allt innan siðprúðra marka að sjálfsögðu, gott Ásta mín að halda okkur aðeins á jörðinni. Heyrðu já varðandi brunnana, við skulum nú vona að það komi ekki til þess, það er víst ægileg hitabylgja úti nú og fólk flykkist á Portabello beach til að njóta góðviðrisins segja þeir í local news. Þannig að við skulum reyna að veðja á að við komum sturtunni í lag ;) Get annars ekki beðið með að hitta ykkur í fyrramálið elskurnar...
omæ, tel klst núna. Er annars farin að pakka. ISS
Þið verðið nú að skrifa smá pistil og leyfa okkur hinum að heyra hvernig er hjá ykkur...:).
Kveðja úr sólinni (já sólinni!!!) á Íslandi.
B
Skrifa ummæli