...var yfirskrift útskriftarhátíðar árgangsins hans Danna sem var kvaddur formlega í Sciennes í dag. Athöfnin var æði. Það er ungt fólk sem kennir krökkunum (svona á mínum aldri, hummm) og prógrammið bar allt keim af því. Fullt af húmor og dansi og söng og ekkert hástemmdur eldgamall kveðskapur, bara rock og ról, Lennon og McCartney. Svo var svaka flottur hipp hopp dans sem krakkarnir voru búnir að æfa og músíkin var alveg á blasti. Inn á milli rifjuðu þau upp minningar sínar frá fyrri árum í skólanum og tengdu það við hvað var að gerast í samfélaginu á hverjum tíma. Þau voru í primary 3 þ. 11. sept. og lýstu því að þau hefðu verið of ung til að skilja hvaða þýðingu þau ósköp höfðu fyrir heimsbyggðina. Í kjölfarið sungu þau lagið Imagine, alveg eins og englakór. Á þessum tímapunkti varð ég bara svo overwhelmed að ég mátti taka mig verulegu taki til að fara bara ekki að háskæla yfir öllu þessu fallega unga fólki. En þá hefði Daníel minn orðið svolítið embarressed og það vildi ég náttúrulega ekki.
Mig langaði samt eiginlega að skæla ennþá meira yfir því að þurfa að taka strákana mína úr þessu frábæra skólaumhverfi þegar ég horfði á Danna minn alveg ljómandi eins og sólin sjálf, að syngja Let it be hástöfum... Það er af sem áður var. Og það má vissulega taka undir þema dagsins:
Everybody's changing and I dont feel the same.......
Þannig er nú það.
þriðjudagur, júní 27, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

4 ummæli:
Ég gat ekki setið á mér í "útskriftinni" hans Árna - þegar hann hætti á yngsta stiginu. Ég vældi eins og kjáni. Sú eina sem átti við sama vandamál að stríða var ólétt og hafði því löglega afsökun ;).
Skil þig því svooooo vel...
B
Takk fyrir spjallið beibí!
Æ hvað þetta hljómar nú krúttað og flott þarna í skólanum! Greinilegt að kennararnir hafa mikinn metnað í að gera vel. Skil vel að þú sért í vafa um hvað skal gera... knús og kveðja.
En er það ekki líka bara gott...þe að allt sé breytingum háð.
Oh ég skil þig svo vel þegar kemur að tárfellingum...ég t.d. þurfti að hafa mig alla við þegar Benedikt gekk inní kirkjuna í fermingakyrtlinum....að fara ekki bara að háskæla....mömmur sko.
Já það getur verið erfitt að taka ákvarðanir...og þegar ákvörðun hefur verið tekin kemur kannski eitthvað inn í myndina sem breytir öllu. En á endanum hefst þetta allt saman og maður endar einhversstaðar...vonandi á réttum stað ;)
Ég get líka vel skilið að skólarnir þarna freisti...hljómar alla vega mjög vel.
Jamm og jæja, vonum að þið hafið haft það gott í ferðinni ykkar, býst við að veðrið hafi verið skemmtilegra en hér á landi ;)
Bestu kveðjur
Skrifa ummæli