þriðjudagur, júní 20, 2006

Afmælisdagur Danna



Á sólbjörtum morgni fyrir 12 árum kom hann í heiminn þessi elska. Mér eru minnistæð orð ljósmóðurinnar sem tók á móti honum: “Maðurinn minn á afmæli á þessum degi og það er alltaf gott veður þennan dag” sagði hún. Og það hefur bara oftast gengið eftir. Veðrið hérna í dag er yndislegt, sól og sumarblíða. Gaman væri að vita hvernig viðrar í dag heima á Íslandi???

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með prinsinn þinn elsku Hildur mín!
Góða veðrið virðist elta ykkur út fyrir landsteinana á þessum degi því veðrið hér er grátt og leiðinlegt. Lítur samt út fyrir betri tíð bráðlega með blóm í haga.
Hafið það gott í dag sem og alla aðra daga darlings.

Nafnlaus sagði...

Hjartans hamingjuóskir með afmælið elsku Danni og til hamingju með guttann Hilla mín!
Hér á landi ísa er sól í hjarta!!!

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með öðlingspiltinn hann Danna :* Hér er allavega einn lítill maður sem væri til í að geta knúsað stóra frænda í tilefni dagsins...en hann gerir það bara í júlí ;) Okkar hlýjustu afmæliskveðjur frá suddanum í Reykjavík, vonum að þið eigið góðan dag.
Þúsund kossar og enn fleiri knús...

Nafnlaus sagði...

Elsku Hilly mín. Ég búin að röfla við þig í allan dag og gleymi svo að óska þér til hamingju með drenginn. Sendu honum okkar bestu afmæliskveðjur frá Hraunbæjargenginu.

McHillary sagði...

Takk fyrir kveðjurnar darlíngs. Það reyndar fór að mígrigna seinni part dags. Afmælisbarnið fékk fótboltaliðið sitt í pizzupartý hérna áðan og the white carpet needs some serious cleaning.
En maður verður bara með Ariel-ið and a happy smile...

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með drenginn!
kv.ásta