þriðjudagur, maí 30, 2006

Jákvæðir straumar og stefnur...

Þá eru kosningarnar yfirstaðnar. Best að hafa sem fæst orð um þær. Ég vona að atkvæðið mitt hafi skilað sér en ég hafði nú bara fyrir því að taka strætó til konsúlsins til að kjósa og þurfti svo að koma atkvæðinu sjálf í póst. Annars finnst mér eftirleikurinn af þessu öllu svolítið kómískur. Allar að makka og halda fundi sitt á hvað. Svo er farið í mat og þá mæta einhverjir ekki aftur heldur hlaupa á fund með andstæðingunum. Þriðja partýið hleypur síðan undan merkjum og handsalar samning bara simmsalabimm, búið að finna sameiginlega stefnu á no time og ekkert raus. Maður sér þá alveg í anda senda sms hægri vinstri með samstarfstilboðum. Algjört kapphlaup um að vera fyrstur og skilvirkni í ákvarðanatöku fer langt fram úr því sem síðan sést á kjörtímabilinu. Þetta er eiginlega bara fyndið...

En jæja, hvað um það. Mig finnst orðið tímabært að segja frá þeim þremur mönnum er auðga líf mitt daglega með jákvæðum viðhorfum og augljósri starfsánægju.

Sá fyrsti er Graham, bréfberinn í hverfinu mínu. Pósturinn Páll er ekki nema bara sýnishorn af honum Graham. Þegar ég var nýflutt dinglaði hann hérna þessi elska, bauð okkur velkomin í hverfið og upplýsti okkur að önnur íslensk kona byggi með eftirnafnið –dottir í götunni. Hann sagðist hafa borið hér út póstinn í 14 ár og ef við ættum í einhverjum vandræðum með póstinn skyldum við bara láta hann vita A.S.A.P.
Um jólin vantaði mig sendingu frá Amazon áður en ég var að halda heim í jólafríið og reifaði það við Graham. Og það stóð ekki á viðbrögðunum, hann kom brunandi með pakkann á póstbílnum kl. 7.20 morguninn sem við héldum heim, með þvílíkum látum að Kela þótti bara nóg um. Hann vann sér inn fullt hús stiga strax í upphafi þegar hann spurði hvort strákarnir væru bræður mínir. Stundum segir hann mér að ég líti vel út þegar það er alls ekki rétt og ég er bara reitt og tætt á náttbuxunum og alveg grá eins og malbik. En ásetningurinn er svo sannarlega góður og það er það sem skiptir mestu máli. Hann er málkunnugur flestum í hverfinu og virðist hámarka það sem hann getur fengið úr starfinu með því að þekkja viðtakendur bréfanna persónulega. Graham er svona maður sem myndi verða valinn employee of the month eða year eða bara forever. Og af því að hér er rík tilhneiging til að veita verðlaun fyrir allt mögulegt og ómögulegt getur bara meira en vel verið að hann hafi unnið Bréfberaverðlaun nú þegar. Spyr hann að því við tækifæri.

Nr. 2 er gangbrautarvörðurinn, eða ‘the Lollipop man’við Bruntsfield Links. Hann er lítill, veðurbarinn karl sem stendur alltaf með sleikjóinn, heilsar glaðlega og segir eitthvað á Taggart skosku sem ég get með engu móti skilið. Hann tekur það mjög alvarlega að gæta öryggis barna og fullorðinna þegar hann er á vaktinni og hundskammaði mig einu sinni þegar ég fór ekki nógu varlega yfir að honum fannst. Það kemur mér einhvern veginn alltaf í gott skap að fara yfir götuna undir hans verndarvæng og það er orðinn alveg ómissandi partur af degi hverjum.

Sá þriðji er stöðumælavörður í Marchmont hverfinu sem verður oft á vegi mínum þegar ég er búin að hitta Graham og sleikjókarlinn. Það eru hreint ótrúlega margir stöðumælaverðir í þessari borg. Þessi er pínulítill náungi sem er eins og stór krakki í uniforminu. Hann syngur iðulega hástöfum og það fer ekkert á milli mála að nýtur þess alveg í botn að labba um og sekta bíla. Það er ekki annað hægt en að njóta þess með honum hvað hann er ánægður með lífið.

Af öllu fólki sem ég hef hitt á lífsleiðinni man ég ekki eftir að hafa hitt neina sem smita frá sér jafn jákvæðum straumum starfsánægju og þessir þrír gæjar. Samt vinna þeir störf sem maður hefði fyrirfram ekki talið að myndu endilega bjóða upp á það...
"Heimurinn er í hausnum á manni" sagði Rúnar Júl einu sinni í viðtali. Og það er greinilega hverju orði sannara...

Ykkar, McHilla

Ps. Afmæli á morgun á dyggur lesandi minn og fyrrum samstarfsfélagi, hún Unnur skvísa.
Margfaldar afmæliskveðjur til þín Unnur mín. Vonandi færðu gott afmælisveður og getur fengið þér white wine in the afternoon...eða jafnvel bara the best champagne in town...

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Hilla mín og takk fyrir afmæliskveðjuna.
Ekki fæ ég nú veðrið til að drekka white wine útivið í dag en aldrei að vita nema maður lyfti glasi af the best champagne in town þegar heim er komið í tilefni dagsins, OKKUR BÁÐUM til heiðurs að sjálfsögðu.
Hafðu það gott darling!

Nafnlaus sagði...

dásamlega skmmtileg frásögn.... ég sit hér og skellihlæ...Knús iss

Nafnlaus sagði...

Alveg ertu milljón:) Veitti ekki af að smita kollega sína á Íslandi þessir flottur herrar. Ég smitaðist svo af sumarbústaðasvæðinu sem þú ert að fara á að ég bara lét senda mér bækling og cd mér að kostnaðarlausu. Er nú að fara að leggjast yfir þetta og skoða. Aldrei að vita nema maður skelli sér þarna að ári:)
kv. Ásta

Nafnlaus sagði...

Sko... og ég smitaðist af þér líka beibílove. "Pay it forward." Sú mynd meikaði doltinn sens, nema endirinn. Sástu hana kanskje ekki?
Nú tralla ég inn í kveldið, poppa og horfi á Aðþrengdar eiginkonur með gleði í hjarta!

McHillary sagði...

Hæ girlís!
Unnur, ég vona að þú hafir átt góðan afmælisdag!

Ásta, skal láta þig vita hvernig mér leist á sumarbústaðarævintýrið, nú styttist víst í það að við höldum í hann og Elísa mín, jú ég sá pay it forward, alveg rétt en ég man ekkert úr henni og endirinn ekki heldur, dó ekki einhver? OO ég elska aðþrengdar, þær eru hérna á miðvikudagskvöldum, Gabrielle er uppáhalds mín svona kaldrifjuð og ósvífin eins og hún er nú...
Eigiði nú allar góða helgi elskurnar og knús til þín líka Inga mín...

Nafnlaus sagði...

Gabrielle er líka mín uppáhalds...enda tók ég eitthvað quiz (spurningapróf á netinu, er það skrfiað svona???) og við stöllur (þ.e. ég og Gabrielle) eigum víst bara margt sameiginlegt....nema kannski ekki það að ég hef hvorki stolið né keypt börn svona það sem af er lífshlaupinu.
kv Inga Miklógella með meiru.

Nafnlaus sagði...

Já Gabríella er flottust! Ég hef nú líka svaðalega gaman að Van De Kamp. Hún er æði!!! þær eru það nú reyndar allar.
knús og helgarkveðja.

Nafnlaus sagði...

Ég er Susan. Tók prófið og er Susan. Ég vissi það fyrir enda er ég með eindæmum mikill klaufi.

Flottur pistill Hildur. Sjáumst hinn daginn!:)

McHillary sagði...

Já ég tók prófið og var Gabrielle. Hélt að það gæti bara ekki verið rétt og þá kom fékk ég þá niðurstöðu að ég væri sambland af Gabrielle og Edie Brit. Sem sagt,hlýtur að vera eitthvað gallað próf...nema fyrir Eddu, hún er pottþétt Susan. Eða hvað, ég er definitely ekki frú Van de Kamp that is for sure (elska það þegar hún er í uppþvottahönskum sem eru í stíl við svuntuna)...en jæja, best að hætta þessu röfli, hér er úti er dásamlega gott veður og hjá Gísla er play date sem stendur til kl. 7. Hlakka mikið til að sjá þig Edda mín...

Nafnlaus sagði...

Tek undir það að "the Lollipop man" er hreint frábær karl og stétt sinni til mikils sóma.
Knús og kossar frá gamla settinu.
Mamma

Nafnlaus sagði...

Jæja mín kæra... hvað er svo að frétta?