
.....er núna næstu 2 daga í háskólanum. Þetta er með töluvert öðru sniði en í HÍ þar sem frambjóðendur þurfa að koma úr röðum prófessora en hér virðist hver sem er geta boðið sig fram, bara eins og í prófkjöri. Frambjóðendurnir er fjórir karlar og valkostirnir eru frekar skýrir. Sjá frambjóðandi er hefur borið mest á er Boris nokkur Johnson( sést hér til hliðar) sem er starfandi skuggaráðherra Íhaldsflokksins í menntamálum. Fyrir þá sem ekki þekkja þetta system þá er það þannig að stjórnarandstöðuflokkurinn starfrækir skuggaráðuneyti sem þrengja að hinum eiginlegu ráðherrum. Boris virðist alltaf vera ógreiddur og hefur lagt upp úr því að höfða til nemenda, mætir á barinn og áritar jafnvel á ber brjóst. Þessi afslappaða framganga virðist hafa fallið vel í kramið þar sem nemendur standa í röðum á campus og auglýsa framboðið.
Einn frambjóðinn, Magnus, er fyrrverandi ritstjóri Scotman og notar það litla rými sem hann fær til að kynna sig á vefsvæði háskólans til að tíunda öll afrek sín án þess að minnast orði á hvað hann hefur fram að færa til starfans. Hinn ástralski John Pilger er allur í mannúðarmálunum og vill gera stúdentum og starfsfólki skólans kleift að mótmæla innrásinni í Írak og ljá máls á mannréttindum í Palestínu. Þetta eru góð og gild markmið en kannski ekki það sem er mest aðkallandi fyrir háskólann. Hefði séð það í anda að frambjóðendur til rektorskjörs í HÍ hefðu sett fram slíka málefnaskrá. En jæja, sá síðast fær atkvæðið mitt. Það er hann Mark, þingmaður fyrir Græna á skoska þinginu og er sá eini sem er fyrrum nemandi Edinborgarháskóla. Það finnst mér plús og hann er þar að auki með frekar skýra málaefnaskrá. Hann ætlar meðal annars að vera til staðar fyrir nemendur og starfsfólk háskólans og bregðast við því sem er aðkallandi. Og það hljómar bara nokkuð vel þó enginn sé hann nú bjútíbollan, líkt og sjá má.

En það er nú kannski ekki aðalatriðið.
Kveðja, Hilla.
P.s. Í dag er víst Valentínusardagurinn hinn ógurlegi og það voru m.a.s. hjartalaga blöðrur í bankanum í dag. Charlotte gjaldkeri var bara með glimmeraugnskugga upp á mitt enni, svo fín var hún í tilefni dagsins. Það er annað en má segja um undirritaða sem er alveg ónæm fyrir þessu Valentínusarbúhúi og þeim vemmilegheitum er þessum degi fylgja. Maður er soddann óttalegur tréhestur...

12 ummæli:
Almáttugur!!! Hvað er málið með þessi logsuðugleraugu sem Mr. Johnson er með??
Er hjartanlega sammála þér með Valentínusardaginn góða... en kannski erum við bara svona gammeldags og órómantískar mín kæra
Heyrumst fljótlega.
Þarna var Boris víst á atkvæðaveiðum í efnafræðideild skólans. Og hann smellti þessari mynd á heimasíðu sína.
Ég held að þú hafir rétt fyrir þér, við erum sennilega bara gamlar lummur mín kæra.....já, heyrumst endilega fljótt! og skilaðu kveðju til Hildar sissu.
Takk fyrir þetta Hilla mín. Ég sé að það er úr vöndu að velja. Muna bara að nota atkvæðisréttinn og kjósa. Það sýndi sig svo sannarlega þegar Vökufólki vantaði bara 4 atkvæði til að ná manni af Röskvu!!! MAGNAÐ!
Ég hreinlega þoli ekki að íslenska þjóðin skuli vera að halda uppá Valentínusardaginn, ég meina er bónda- og konudagurinn ekki nóg? Bara peningaplokk og ekkert annað. Svo leiðir þetta líka til þess að ég og minn ektamaður viljum varla halda uppá brúðkaupsdaginn okkar, sem svo vill til að er á þessum góða degi. Við vorum svo halló að gifta okkur á þessum degi en það er nú önnur saga. Jæja mín bara orðin æst... Ætlaði nú bara að segja hæ :) Hæ Hildur mín, vona að þið hafið það gott.
GH
Til hamingju Gullan mín með brúðkaupsammmmælið!!! smúúúúss!(eða ekki... eru ekki streptar að ganga á þínu heimili?) Við héldum upp á valentínusardaginn með því að fara á skyndihjálparnámskeið fyrir börn. Mæli með því fyrir alla!
Já til hamingju Gulla mín! eru það ekki örugglega 2 ár honní síðan þið gengu í það heilaga??ég man að þú varst voðalega þversum yfir því að vera bendluð við valentínus á þessum degi og ert greinilega enn!!Jæja, allt um það, er búin að hafa það of gott í vikunni, strákarnir í vetrafríi og alltaf sofið út. I like it tooooo much! vandamálið er hins vegar að ég hef ekkert komist af stað með ritgerðina mína um the embedded liberalismmmm í EU... very exciting eða þannig, verð að vera geggjað dugleg á morgun...
mér líst vel á þetta með skyndihjálparnámskeiðið, það er meira hvað þið eruð ábyrgð hjón, ef mig misminnir fóru þið fyrir nokkrum árum á svona námskeið ekki satt? Þetta þyrfti ég að gera, reyndar má ég eiga það að ég fékk tvo slökkviliðsmenn um daginn til að fara yfir eldvarnirnar á heimilinu og hanna neyðarplan.. það er semsagt allt undir kontrol núna ef það kviknar í. Muniði nú að loka alltaf inn í eldhús (ef hægt er) og inn í stofu áður en þið farið að sofa því það kviknar í yfirgnæfandi hluta tilfella á þeim stöðum. Þetta gæti gefið ykkur auka 30 mín. til að komast út. Legg ekki meira á ykkur.
Luv til ykkar og eigiði góða helgi...
þetta átti að sjálfsögðu að vera:
"ef mig misminnir EKKI fóru þið..."
... skil jú beibí. jú við Birgitta fórum fyrir nokkrum árum síðan og það var mikið fínt.
Ingunn Jóna datt af stól um daginn og rotaðist og missti andann og fékk heilahristing. Ég fríkaði út og hljóp með hana inn í næstu íbúð og þar var hringt á sjúkrabíl. Henni varð ekki meint af en ég sá að viðbrögð mín voru allsvakaleg. Nú, næsta sem ég veit er að Óli bróðir hringir. Hann var þá búinn að redda pössun og borga námskeið fyrir okkur bæði hjá Rauða krossinum. Hrikalega sætt af honum, þessari elsku! Svona var það nú!
Ég er nú pínu veik fyrir sköllóttum mönnum með gleraugu......
það eru nú fleiri mín kæra því hann bara vann gæjinn og er næsti rektor. Hjúkk að Boris skyldi ekki komast að, þá hefði ég nú bara farið að mæla gegn lýðræðinu svei mér þá....
mmm, flott mar, þannig að Huginn á sumsé sjens í framboði??? ;o)
ekki spurning, þetta er hið ábyrga framboðslúkk....
Skrifa ummæli