mánudagur, febrúar 06, 2006

Mánudagar....

....eru ekki jafnskemmtilegir og föstudagar. Þá verður mér alltaf ljóst að ég hef farið of geyst í helgargleðina hvað sætindi og kruðerí varðar og því er alltaf aðeins erfiðara að hjóla leiðina mína heim úr skólanum. Ég sagði nú ekki frá því síðast (því það hefði alveg skemmt myndina af mér með að labba heim með kirsuberin og nektarínurnar) að ég kom líka við í Scotmid á föstudaginn á leið heim úr nuddinu og keypt 2 stóra pakka af kókosbollum á tilboði. Samtals eru það einar 32 bollur. Núna sé ég að það hefði verið betra að láta einn pakka nægja.

Jæja, dagurinn í dag er að þessu frátöldu ekki búinn að vera sem verstur. Ég er á mánudögum í skólanum frá 2-5, í tímanum um Evrópusambandið og umræðutíma á eftir. Ég var svo lánsöm að Katrín, dóttir hennar Villu, getur passað fyrir mig á mánudögum, þannig að ég slapp við einkatímana með kennaranum. Við áttum annars rólega helgi eins og venjulega. Daníel fór á fótboltaleik milli Rangers og Hibbs í Glasgow með Lindsay og félögum og Gísli fór í afmæli. Í gær fór ég og náði í pappíra vegna páskaleyfisins. Eftir nokkra umhugsun var sem sagt ákveðið að fara til Möltu. Jibbíjeijeieijei, 3-13 apríl og þar ætla ég að spa-ast frá morgni til kvölds á fína hótelinu sem við gistum á. Get ekki beðið. Með í för verða mamma og pabbi en Keli verður því miður fastur í vinnunni heima. Hann hinsvegar kemur um næstu mánaðarmót í stutta heimsókn og Hilla litla telur nú niður þangað til.

Ég var að sjá rétt í þessu á vefnum að Sandra Franks, stjórnmálafræðingur og vinkona mín var að taka sæti á Alþingi í dag! Júhúúú, innilega til hamingju með það mín kæra Sandra. Nú er rétti tíminn til hrista vel upp í þessu þingpartýi....koma svo...
Luv, Hilla

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hei þú ógisslega töff
ég er að tala við þig.
Ég er Silvia Night shining in the ligt,
ég veit þú þráir mig....
Gjörsamlega glymur í hausnum á mér þetta lag. Guð hvað það var sniðugt hjá þér að geyma þetta með kókosbollurnar.. var svo falleg mynd af þér í hausnum á mér að ég var nátturulega bara í skyri og ávöxtum alla helgina...Já þú hefur góð áhrif á mann Hildur mín svona þar til áðan og þá fór ég niður og réðist með áfergju á snickerstykkið sem hefur ógnað mér í skápnum í 4 daga... já ég er áhrifagjörn það verður að segjast!
lovjú my darling gangi þér vel í ritgerðarsmíðunum.

McHillary sagði...

Ó mæ god Ásta mín, mikill er máttur internetsins og ég smita þig bara af græðginni yfir hafið...maður er svo labill eitthvað, ekki með neitt self control... ég er í átkasti dauðans þessa dagana og það vantar bara að ég fari að naga sófaborðið. Er sammála þér með lagið hennar Silvíu... ég er föst á þessu:
Mitt lag ógesslega töff
ekkert næntís ógeð..
Lovjú tú darling, vona að þú hafir það ógessslega gott.

Nafnlaus sagði...

Sæl elskan
Er einmitt rétt í þessu að horfa á lærimeistarann þinn ásamt sínum heitelskaða að sína íbúðina sína í innlit-útlit í tólfta sinn....þannig að mér varð hugsað til þín.
Æji ég skil þig með bollurnar...maður er einmitt svo stabíll alla daga svo opnar fyrir flóðgáttir um helgar.....meira vesenið.
Það er saumó hjá Gullu á morgun, verður án efa mikið stuð að vanda.
Vona að lífið sé í blóma í Edinb.
Take care my dare. Knús ISS

Nafnlaus sagði...

Malta ha...það er flott. Örugglega gaman að sækja Möltu heim. Spa. *öfund*

Nafnlaus sagði...

Takk Hildur mín og gaman að sjá hvað þú fylgist vel með vinum þínum og vinkonum hér á klakanum. Jújú, ég er komin á þingið, og hélt þar mína jómfrú strax á fyrsta degi, blandaði mér svo aðeins inn í umræður um stjórn fiskveiða.
Þetta er mjög skemmtileg upplifun og lædómsrík. Jú,jú, svo er jómfúaræðan komin á althingi.is og fjallar um LOÐNUVEIÐAR!!

Vilborg Davíðsdóttir sagði...

Vildi bara minna á að það styttist ógisslega hratt í föstudaginn þegar við ætlum að sýnessu breska liði hvernig ísslenskar gegt töff konur fara á kaffihús og horfa niður með nefinu á pöpulinn.... Klukkan hvað ætluðum við að vera þar aftur?

Nafnlaus sagði...

Hvaða lærimeistara er Inga annars að tala um? Ég man bara eftir einni kvensnift sem hefur birst reglulega í þessum þáttum þegar hana hefur langað að gera upp hjá sér fyrir lítinn pening og það er drottning væmni og Valentínusar, sjálf Valdís Gunnars.

McHillary sagði...

Mér finnst líklegt að Inga sé að vísa hérna í hann hr. Baldur Þórhalls... hann er eini lærimeistarinn minn sem á einhvern heittelskaðan... í það minnsta að því er ég best veit..Am I right?

Nafnlaus sagði...

Ég vissi að þú myndir skilja þetta, Hilla mín. Í 12 heimsókninni til þeirra kom í ljós að húsið virðist bara vera tilbúið, makalaust alveg. Það sem er hægt að gera að sjónvarpsefni ;)
Er verið að fara eitthvað á skrall?

McHillary sagði...

Já í hádeginu á morgun ætlum við Villa á beyglu og kaffi skrall á stuðstaðnum Elephants and Bagels!Þá verð ég vonandi búin að skila ritgerðinni og hef tilefni til að fagna, smella á mig lipstick og sýna mig og sjá aðra...