þriðjudagur, desember 20, 2005

Jólafrí!

Jæja, klára fyrir síðasta skiladag sagði ég síðast....yeeeee right. Rétt marði það fyrir lokun skrifstofutíma á föstudaginn eftir að hafa vakað alla nóttina og náð svona að meðaltali 4-5 tíma svefni alla vikuna. Ég var jafngrá og malbik í framan. Aðferðafræðiprófið var martröð, sat alveg föst á einum hlutanum. Hefði getað eytt heilum mánuði í viðbót að brjóta heilann um líkanið sem ég átti að hanna. En jæja, þetta hafðist allt saman og vonandi kom þetta þokkalega út hjá mér. Á föstudaginn tók svo við langþráð jólafrí og gvvuð minn góður hvað það er dásamlegt. Núna er náttúrulega spænt út og suður að gera allt það sem hefur setið á hakanum í nokkuð langan tíma. Við fórum í tívolí á föstudagskvöldið en það er árlegt jólatívolí og jólamarkaður í Princess Gardens sem kallast Winter Wonderland. Það er alveg himneskt, það er svo gaman að labba þar í ljósunum, ég skellti myndum úr bæjarreisunni á barnanetið, www.barnanet.is/1777.

Á laugardagskvöldið fórum við svo í árlegt jólaboð Lindsay og Barböru. Þau hjónin eru foreldrar stráks sem spilar fótbolta með Daníel og hafa tekið ægilegu ástfóstri við Danna minn. Lindsay sækir hann hérna oft í viku til að keyra hann á leiki og hefur boðið Gísla stundum með að spila fótbolta. Lindsay er ýmist á Porche, Jaguar eða BMW og virðist ekki þurfa að hafa miklar áhyggjur af útgjöldunum. Það hafa verið hérna töluverðar vangaveltur yfir því hvað Lindsay hefur að atvinnu og höfðum það að mission að komast að því á laugardagskvöldið. Og þvílíkt teiti, maður lifandi. Þau leigðu stórt center þar sem þau voru með ca. 80 manns í mat og svo tvo stóra sali fyrir u.þ.b. 50 börn. Töframaður var með skemmtiatriði fyrir börnin og svo var risastórt paintball apparat blásið upp í einum salnum og hægt að fara í gladiator skylmingar öðrum. Þegar inn var gengið tóku stóðu nokkrir carol singers bláir af kulda úti að syngja jólalög. Strengjakvartett spilaði undir matnum og töframaðurinn gekk á milli borða og galdraði fyrir fullorðna fólkið. Þegar matnum var lokið var slegið upp dansleik með hljómsveit sem spilaði skosk þjóðlög og gestirnir dönsuðu þjóðdansa, allir með, börn og gamlingjar. Við Keli vorum bara alveg mát yfir þessum ósköpum.

Nú veit ég ekki hversu vel þið þekkið skoska þjóðdansa, ég var persónulega ekki vel að mér fyrir laugardaginn en get upplýst að þetta eru ægilega mikil hlaup og snúningar og það dugar ekkert annað en að vera léttur á fæti. Lindsay var óður í dönsunum bókstaflegri merkingu. Hann snéri svoleiðis hverri kerlingunni á fætur annarri af þvílíkum móð að við biðum bara eftir því að þær þeyttust út í veggi. Lindsay tók ekki annað í mál en að ég stigi við sig eins og einn þjóðdans. Ég hoppaði og snérist svo með karlinum að ég man bara ekki eftir að hafa lent í öðrum eins átökum. Lagið ætlaði aldrei að hætta og ég var eins og másandi hvalur þegar ég staulaðist upp að borðinu okkar. Ekki lagði ég nú í fleiri atriði eftir það. En þetta var svo sannarlega mikil upplifun og hefðum við nú ekki vilja missa af þessu. Við vitum hins vegar ekki enn hvað Lindsay og Barbara gera. Við ályktum sem svo að það hljóti að gefa góða afkomu, hvað sem það nú er.

Í dag er afmælisdagurinn minn!!! Júhúúú, 32 ára er hún kerlingin. Þetta líður svei mér þá. Maður verður orðin fertugur áður en maður veit af. Ég er ánægð með þann stað sem ég er á í lífinu á þessum tímamótum. Okkur líður öllum vel hérna og þessi dvöl hefur verið alveg ótrúlegur skóli. Edinborg býr yfir töfrum sem við höfum smitast af og verðum trúlega öll með Edinborgarveiki það sem eftir er.
Ekki er allt búið enn, eigum enn eftir tímann fram í september. Held að hann verði samt of fljótur að líða. Í tilefni af afmælisdeginum mínum keypti ég köku í Marks og Spencer sem er marsípan snjókarl og ég ætla að háma hann í mig (ásamt öðrum í fjölskyldunni of course). Við Keli ætlum að jólast niðri í bæ meðan strákarnir eru í skólanum því við höfum í nógu að snúast. Ennþá eftir að redda töluverðu af jólagjöfum og græja heimförina á föstudaginn. Ójá, það er bara að koma að því að maður komist heim í jólafrí. Mikið verður nú gaman að sjá ykkur elskurnar mínar. Ég veit að ég var sjálf með yfirlýsingar varðandi jólakortin um daginn. Það tilkynnist hér með að öll kort frá mér verða sein í ár. Ég náði ekki að skrifa þau og senda meðan ég var á kafi í skruddunum og er því orðin of sein að senda þau heim. Þau fara hins vegar í póst um leið og ég kem á Þorláksmessu en það mun nú ólíklega berast fyrir jól. Biðst velvirðingar á þessu.
En jæja, segi þetta gott í bili.
Luv jú all. Ykkar Hilla afmælispilla.

P.S. Ég má til með að benda á áhugavert veftímarit um stjórnmálafræði sem var að opna núna 15.des. Og haldiði að þar sé ekki að finna grein eftir Hillu litlu, byggða á hinni tímamótalokaritgerð minni um vísindahvalveiðar. Ég veit þið iðið nú alveg í skinninu að glugga í þetta spennandi efni....voila...www.stjornmalogstjornsysla.is (í erindi og greinar).

P.P.S. og ég má til með að óska Hörpu Hjartar til hamingju með afmælið sitt á morgun. Jæja, Harpa mín það eru nú orðin ár og dagur síðan við slógum afmælunum okkar saman í Casablanca. Hver man ekki eftir því..19 ára var ég þá, held að ég hafi reyndar ekki haldið upp á afmælið mitt almennilega síðan....Eigðu góðan dag mín kæra..

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með afmælið.Eigðu góðann dag og sjáumst hressar eftir aðeins örfáa daga. Knús ISS

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn ljúfan mín :) Búin að hugsa mikið til þín, og takk fyrir að muna eftir mér á morgun, smúss! Ohh, ég fékk bara flashback, það er enginn staður sem jafnast á við Casa, það er nú deginum ljósara. Já, afmælið okkar var nú flott (eins og við erum bara), en mér finnst alveg magnað að þú skulir verða orðin 32 ára þar sem ég er bara fem og tyve!!?? Skrýtið.... Já, það er vonlaust að halda uppá afmælið sitt á þessum árstíma, en ég legg til að við höldum upp á fertuginn saman, getum endurvakið Casa fílinginn :) Njóttu dagsins gullið mitt og gúffaðu í þig snjókallaköku (þú þarft ekkert að gefa með þér frekar en þú vilt, það eru kostirnir við að vera afmælisbarnið ;) )
Knús, Harpa.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn og njóttu hans í botn. Við munum skála fyrir þér og árunum þínum 29.des :D.
kv,
Birgitta.

Nafnlaus sagði...

Var þetta verra en þegar Jónas sveiflaði þér af þvílíku afli í Hollywood hér um árið að þú sást veggina koma á móti þér og hélst að þú værir að lifa þitt síðasta?

McHillary sagði...

Takk fyrir góðar kveðjur kerlurnar mínar, hlakka ósköp til að sjá ykkur. Ég kveiki ekkert á þessum Jónasi og veggjadansinum, hver var það nú Edda mín? Maður man bara það sem maður vill muna frá þessum árum, seisei já...

Nafnlaus sagði...

Ég man bara að hann heitir Jónas. Og við kölluðum hann Jónas í hvalnum. Hann bauð þér upp í þennan feigðardans og þar með líkur hans þætti í ævisögu minni. Hlógum okkur svo máttlausar inni á klósetti að aðförunum. Hann var frekar sveitt týpa.

Nafnlaus sagði...

Elsku Hildur mín,
Innilega til hamingju með afmælið í gær...ein svolítið sein..en betra seint en aldrei. Mikið verður nú gaman að hitta þig hér í sveitinni þann 4. jan....ertu ekki annars laus þá?? Vona það alla vegana, hlakka til að heyra fleiri sögur frá Edinborg ;-)
Vonandi áttir þú góðan afmælisdag og sjókarlinn hafi smakkast vel.
Kv. Bryndís

Nafnlaus sagði...

Blessuð Hildur!

Byrja nú á að óska þér til hamingju með afmælið um daginn og vona að þú hafir átt góðan dag. En svo skrifa ég hér líka í opinberum erindagjörðum og sendi þér jólakveðju frá öllum læknariturum á Barnaspítalanum þar sem enginn vissi hvert átti að senda kortið! Hafið það öll sem allra best yfir jól og áramót og slappaðu nú vel af hér heima. Ef þú hefur tíma þá vekur það alltaf ægilega lukku að kíkja í heimsókn :)
Hildur

Nafnlaus sagði...

Velkominn heim öllsömul! Hlakka til að hitta þig krúslan mín. Hafið það mikið gott þangað til.