laugardagur, nóvember 26, 2005

Jólamarkaður...á mína ábyrgð

Þetta var nú víst jólamarkaður en ekki jólaskemmtun. Smá misskilningur. Ég ákvað nú að láta mig hafa það þó mér finndist ég hafa verið framkvæmdalaus og við fórum eftir hádegi í dag. Og það munaði ekki um dótið, drottinn minn dýri. Það bókstaflega flaut út um allt. Fjölskyldur barna í Sciennes hafa heldur betur doneitað. Ég hins vegar styrkti foreldrafélagið af örlæti með því að kaupa varning sem mitt contribution. Og the Tombola bottles voru semsagt óopnaðar flöskur sem maður átti að gefa á tombólu. Ég hélt að þeir væru að safna tómum flöskum. Það hefði nú verið upplit ef ég hefði komið með fulla poka af gömlum glerflöskum. Ég þarf greinilega að gefa mér meiri tíma í upplýsingaöflun. Og þarna voru flöskur af öllu tagi; gosflöskur, sjampóflöskur og m.a.s. vínflöskur! Skotarnir eru nú léttir á því, maður yrði alveg málaður í horn að koma með áfengi í fjáröflunarstarfsemi sem tengdist grunnskólabörnum heima á Íslandi.

Ég keypti að lokum smarties til að gefa í þetta pakkadæmi. Ég mátti engan tíma missa með skæri og límband með mér, en við komum við hjá Indverjunum upp á horni á leiðinni á markaðinn. Þetta var dálítið hraðsoðið, ég að pakka inn á sætinu á hjólinu mínu fyrir utan búðina. Þar að auki vorum við að verða of sein. Gísli var stressaður en hann átti að standa vakt á jólamarkaðnum við að selja Fair Trade Products. Við lentum í smá þrefi út af þessu mæðginin og ég endaði á því að benda honum á að mamma hans væri nú með svolítið stífa dagskrá, alveg á fullu í skólanum og með þá tvo og öllum þeim verkefnum sem því fylgdi. Gísli varð pirraður yfir þessari rökfærslu. “Það varst þú sem ákvaðst að eiga tvö börn og þú berð ábyrgð á því. Ég get ekkert að þessu gert, þetta var þinn kostur og ef þú hefðir valið öðruvísi þá væri ég ekki til.” Hananú og hafðu það kjélling.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl svítý
Já þetta getur stundum orðið svoldið strembið ein með tvö börn í hörku námi. Sérstaklega í samfélagi þar sem er gert ráð fyrir að mæður séu bara heim allan daginn að stoppa í sokka og steikjandi lummur. Þú ert algjör hetja. knús ISS

Nafnlaus sagði...

Þabbara sona..hann er ekkert að skafa utan af þessu,hehe. Alltaf hægt að treysta á að blessuð börnin séu hreinskilin ;)

Gangi ykkur vel í öllu saman :)

McHillary sagði...

Já maður fær bara á baukinn. Ekki veit ég nú með hetjuskapinn Inga mín. Ég þekki nú eina sem flutti ein með drengina sína til DK og svaf helt alene í nýbyggðu húsi sem reynt hafði verið að brjótast inn í og með enga nágranna og engin götuljós. það hefði farið hrollur um mig þá, mín kæra...

Nafnlaus sagði...

ha ha ha, hann er æðislegur hann sonur þinn, segið svo að maður getir ekki svarað fyrir sig! Alger snilld :)
Mér finnst þú alveg svakalega dugleg Hildur mín, og hann á eftir að skilja það þegar hann verður eldri. Sem hjálpar manni nákvæmlega ekkert núna reyndar... Hvernig væri nú að taka myndir af íbúðinni og umhverfi og skella einhvers staðar, ertu kannski búin að því? Ég kíki á síðuna á hverjum degi, þú ert snilldarpenni, og ofsa gaman að lesa pistlana þína. Kremilaninn jafnaðist á við Arnald Indriða! Gangi ykkur vel.. mússí múss..

McHillary sagði...

Hæ Harpan mín, alltaf jafn gaman að fá frá þér komment honní og ekki leiðist mér nú hólið... Ég er búin að smella þó nokkru af myndum inn á barnanet.is/1777, er nýbúin að smella inn nokkrum sem hafa verið teknar í nóvember... endilega kíktu, þar eru þó nokkrar af íbúðinni okkar og the surroundings.
Hlakka svvooo til að sjá ykkur um jólin. Luv,

Nafnlaus sagði...

Hallúúú beibí. Þú ert dásamleg!!! Algjör perla.
Ingunn hringdi í gær og við fastsettum 29. des. Nú er best að byrja að biðja "Tums" magameðalið til að byggja sig upp enda ætlum við að byrja snemma og hætta seint. Þið hinar skvísípæs.... takið daginn frá! :)
Svo varðandi Miklagarðssaumó þá hitti ég Bryndísi og hún ætlar ap halda saumó þegar þér hentar! Þið verðið baara í bandi með það. God.. það er bara að fyllast social-calanderið!
Later. Ég er að baka því daman er eins árs í dag. Time flyes when you are changing diapers.
Knús héðan.

McHillary sagði...

Elsku Elísan mín! Til hamingju með lilluna, Eitt ár! herre gud, ég man nákvæmlega hvar ég var þegar ég fékk sms-ið frá þér, á mínum fjallabíl að bruna niður í bæ til að ná í heimildir fyrir ritgerð. Þessi árstími breytist ekki mikið hjá manni. 29.des sounds bjútífúl, get ekki beðið, gvvuð það var svo gaman hjá okkur síðast...Það er spurning hvort Bryndís getur haldið saumó fyrstu dagana í janúar áður en ég fer heim, fer á þréttándanum. Það væri geðveikt.
Gangi þér vel að baka honní bonn, ertu ekki með myndir einhvers staðar á vefsvæði af ykkur?
Luv, Hilla

Nafnlaus sagði...

Sælar,
Guð hvað það er alltaf gaman að lesa pislana frá þér, þú jafnast nú næstum því á við Arnald eins og hún Harpa segjir ;-)
Með Mikló-saumó þá er ég sko til í fyrstu dagana í jan....segð þú bara til hvaða dagur hentar þér best og ég er til í nýja húsinu í sveitinni. Hitti þig kannski bara á MSN-inu þegar ég kem heim frá Boston með ákv. dag...en ég er að fara með alla drengina mín þangað á morgun kem eftir helgi.
kv. Bryndís

McHillary sagði...

Mér líst svaka vel á þetta, spennandi að koma í nýja húsið Bryndís mín! Hafið það gott og gaman í Boston og við heyrumst þegar þú kemur til baka.Luv, Hilla.