föstudagur, október 14, 2005

Thank god it's Friday

Jæja, þá hefur maður loksins smá stund aflögu til að sinna netskyldum sínum.
Arggg, ég er búin að sitja síðan í morgun yfir þessu verkefni mínu og hugtakið governance er ekki mitt favorit at the moment. Mig langar svo að klára þetta á morgun svo ég geti frílistað mig með mömmu og strákunum á sunnudaginn en nú eru strákarnir komnir í haustfrí í 10 daga. Ég er hálf nervus við að vera misskilja þetta verkefni eitthvað og svo er maður eðlilega lengur að rembast við að vera gáfulegur á ensku.
Anyway.

Ég er að ná bara nokkuð góðri félagslegri tengingu við samstúdenta mína og er ég ánægð með það. Mér miðar bara þokkalega vel að verða vinkona þessarar brasilísku. Hún vinnur víst í alþjóðasamskiptum fyrir brasilísku ríkisstjórnina. Svo kynntist hún skoskum leigubílstjóra á einhverju ferðalagi og býr með honum hérna. Mér finnst það dálítið smart. Sérstaklega af því að þetta er eldklár stelpa og lítur út fyrir að koma af efnuðu fólki. Maður sér því þarna einhverja auka rómantík. Sá georgíski er mikið partýljón og vill fara á pöbbinn eftir síðdegistímana. Ég lét slag standa á fimmtudaginn og náði að spjalla þó nokkuð við Írann sem er aldursforsetinn í hópnum. Kemur þá ekki í ljós að hann var bara í Borgarnesi ekki alls fyrir löngu. Á einhverri vinnumálaráðstefnu skildist mér. Hann er mikill Íslandsvinur og gæti bara vel hugsað sér að flytja heim á skerið. Ég lyftist bara öll upp við þetta og við gátum rætt m.a. um gagnagrunninn og hið íslenska okurverð á áfengi. Írinn, vinur minn, segir að rannsóknir í tengslum við gagnagrunninn hafi leitt það í ljós að 60% Íslendinga séu af írskum uppruna. Hafið þið heyrt það? Ekki ég fyrr en núna, hefði ekki haldið að hlutfallið væri svona hátt. Írar eru svona dálítið meira óheflaðir en Bretar, ekki alveg að deyja úr þessu politeness alltaf. Og það verður nú ekki sagt um Íslendinga að þeir séu uppteknir af kurteisi. Ætli það sé írski arfurinn? Mér finnst það alltént notalegt að geta spjallað við Írann á þessum sameiginlega basis. Maður getur orðið óskaplega þreyttur á því að vera alltaf að passa sína manners.

Í kvöld ætlum við að horfa á IDOL og íslenska bachelorinn og einhvern þátt með henni makalausu Leoncie. Við fengum semsagt sendingu frá Arnari brósa mínum í dag og nú verður íslenskt sjónvarpskvöld. Þúsund þakkir Arnar minn, þú hugsar um okkur IDOL-fans. Ég kannski kemst þá að því hver þessi Hulda er sem Elísa heldur með.
Later beibís, Hildur Smovernance

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eins og talað úr mínu hjarta - "Thank god it´s Friday"
Já ég hef nú heyrt þessa 60% tölu áður og svei mér þá égheld ég trúi henni nú bara... sér í lagi eftir að hafa prófað írska pöbbmenningu... eitt kvöldið í Dublin 2001! í stuttu máli sagt... það var mjööög gaman!

Nafnlaus sagði...

Allamalla búddulína... hin mysteríska Hulda er engin önnur en Hulda Proppé... en hún er konan hans Gassa frænda míns. Það kom á daginn eftir all-langdregna þrjá þætti að hún er ekkert sýnd þar. En það mun verða breyting á því hún komst áfram og alla leið í sjónvarpssal. Því segi ég ÁFRAM HULDA.. Alla leið í Smáralind!
Anyways... mikið er ég glöð að þú skulir vera að sosielera með samnemendum. Það er svo gaman að kynnast fólki svona all around the world eins og maðurinn sagði. Bara ekki koma heim svo úttlensk eins og strákurinn frá Vestmannaeyjum sem dvaldi vetrarlangt erlendis. Hann kom heim með þennan gasalega mikla hreim og vatt sér að næsta manni og sagði á bjagaðri íslensku: "Fyrirgefðu, getur þú segt mér hvar pósthúsið er?"

McHillary sagði...

hæ stelpur! ó mæ god, maður verður kannski bara alveg svakalega útlenskur, þú þekkir þetta nú Elísa mín sem bjóst nú í 2 ár í Seattle, þú varst nú bara góð í íslenskunni þegar þú komst heim. Annars finnst þér doldið gaman að því hvað hann Gísli minn skýtur inn enskum orðum; þarna er maðurinn sem er security...og kemur þú svo to collect me? og ó my godness, við missum bara af strætó....